Opatanol
Augnlyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Ólópatadín
Markaðsleyfishafi: Alcon | Skráð: 1. maí, 2004
Opatanol er sértækt ofnæmislyf sem notað er við tárabólgu í auga vegna ofnæmis. Virka efni lyfsins, ólópatadín, hindrar áhrif histamíns en histamín er það boðefni sem veldur helstu einkennum ofnæmis eins og kláða, roða og bólgu í yfirborði augans. Einnig benda rannsóknir til þess að ólópatadín komi í veg fyrir losun bólguvaldandi efna úr mastfrumum í táragöngum augans.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Augndropar.
Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga 2svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nokkrar mín.
Verkunartími:
8-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef búast má við því að ofnæmisvaldar séu til staðar í umhverfi skal halda áfram að nota lyfið reglulega, jafnvel þótt einkenni séu horfin.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir má skola lyfið úr auganu með volgu vatni. Ekki skal nota meira af dropunum fyrr en nota á þá næst. Hafðu samband við lækni ef einhver óvenjuleg einkenni koma fram.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Lyfið skal ekki nota lengur en 4 mánuði í senn.
Aukaverkanir
Aukaverkanirnar geta valdið óþægindum en flestar líða þær fljótt hjá.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Roði og bólga í augum eða augnlokum |
Milliverkanir
Ef annað augnlyf er notað eiga að líða 5-10 mín. milli notkunar á því og Opatanol.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 3ja ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið tímabundinni þokusýn og skal þá bíða þar til sjón er aftur orðin eðlileg áður en ekið er.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Ekki setja dropana í augun ef þú ert með augnlinsur. A.m.k. 10-15 mín. þurfa að líða frá því droparnir eru notaðir og þar til linsurnar eru settar aftur í augun.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.