Optovite B12
Vítamín | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni:
Markaðsleyfishafi: Laboratorios Normon | Skráð: 1. maí, 2020
Optovite B12 inniheldur cýanókóbalamín og er ætlað til notkunar við B12-vítamínskorti. B12-vítamín er m.a. nauðsynlegt fyrir frumuskiptinguna. Rauðu blóðkornin eru í hópi þeirra frumna sem skipta sér hvað oftast og því veldur B12-vítamínskortur blóðleysi. Einnig er B12-vítamín nauðsynlegt fyrir nýmyndun tauga. B12-vítamínskortur getur stafað af ýmsu, eins og of lítilli myndun á sérstaks próteins (intrinsic factor), áfengissýki, mataræði snauðu af dýraafurðum (kjöti, mjólk, eggjum) í langan tíma og af langvarandi sýkingu í briskirtli. Langtímanotkun sumra lyfja getur líka aukið hættuna á B12-vítamínskorti.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf, gefið í vöðva eða djúpt undir húð.
Venjulegar skammtastærðir:
Algengasta skammtastærðin: 1.000 mcg á dag í 1 viku í upphafi meðferðar, þá 1.000 mcg gefið 1 sinni í viku næstu 4-8 vikur og að svo 1.000 mcg gefið mánaðarlega sem viðhaldsskammtur.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Einstaklingsbundið.
Verkunartími:
Einstaklingsbundið.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Takið næsta skammt á venjulegum tíma. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að nota.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta meðferð nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Ákafur niðurgangur | ![]() |
![]() |
|||||
Erting á stungustað | ![]() |
![]() |
|||||
Kláði og útbrot í húð | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
Blóðkalíumlækkun | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með taugasjúkdóm
- þú sért með skerta sjón
- þú hefur verið meðhöndlaður við risakímfrumublóðleysi
- þú hafir tilhneygingu til þess að fá þvagsýrugigt
Meðganga:
Gefa má lyfið þunguðum konum ef nauðsyn krefur. Ráðlagður dagskammtur er 4 mcg.
Brjóstagjöf:
B12-vítamín skilst út með brjóstamjólk en það má þó nota það meðan barn er á brjósti og notkun þess jafnvel ráðlögð þegar ungbarnið fær ekki nægilegt magn með brjóstamjólk. Ráðlagður skammtur fyrir ungbörn er 0,5-3 mcg á dag.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.