Ovixan

Barksterar húðlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Mómetasón_

Markaðsleyfishafi: Gallencia | Skráð: 1. júní, 2013

Mómetasón, virka efnið í Ovixan, er barksteri með sömu áhrif og sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Ovixan er notað útvortis við exemi, bólgum, kláða, psoríasis og ofnæmiseinkennum í húð. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Mómetasón tilheyrir flokki 3, næststerkasta flokknum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem og húðlausn.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið á í þunnu lagi einu sinni á dag. Hendur skal þvo eftir notkun.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Við psoríasis: Um 3 dagar. Við húðbólgum, t.d. vegna ofnæmis: 3 dagar-3 vikur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega aðeins notað þangað til að einkenni hafa minnkað eða eru horfin. Farðu eftir fyrirmælum læknis.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.

Langtímanotkun:
Meiri hætta er á því að aukaverkanir lyfsins komi fram. Mómetasón getur valdið húðþynningu þegar það er notað útvortis lengi í senn.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er notað í stuttan tíma. Við meðhöndlun á stórum húðsvæðum geta almenn áhrif barkstera komið fram. Afleiðingarnar geta verið kringluleitara andlitslag, beinþynning og hömlun á vexti. Þetta er hins vegar mjög sjaldgæft.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Almenn steraáhrif        
Húðþynning          
Sýking í húð          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins. Ekki mælt með notkun lyfsins hjá börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.