Oxycodone Alvogen
Lyfseðilsskylt
Oxycodone Alvogen er notað við miklum eða mjög miklum verkjum en er ekki ætlað til að meðhöndla bráðaverki. Lyfið inniheldur oxýkódon og er flokkað sem náttúrulegur ópíumalkalóíði. Lyfið hefur áhrif á miðtaugakerfið og hindrar að sársaukaboð berist þangað. Það hefur aðallega verkjastillandi og róandi áhrif. Auk þessara áhrifa getur lyfið dregið úr hósta og minnkað þarmahreyfingar. Ávanahætta er nokkur og sé lyfið notað til langs tíma getur myndast þol við áhrifum þess. Oxycodone Alvogen er forðatafla sem losar lyfið út í tveimur fösum. Fyrst er hröð losun og virkni á minni hluta lyfsins en megnið af lyfinu losnar hægt út í líkamann og verkar á lengri tíma.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Öndunarbæling er ein alvarlegasta aukaverkun lyfsins og er líklegri hjá öldruðum og mikið veikum sjúklingum.
- Breytingar í skapi, virkni og vitsmunumLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregðaLeitið til læknis
- MunnþurrkurLeitið til læknis
- NáladofiLeitið til læknis
- Ógleði, uppköst, meltingartruflanirLeitið til læknis
- ÖndunarerfiðleikarLeitið til læknis
- Ropi, hiksti, lystarleysiLeitið til læknis
- Slævandi verkunLeitið til læknis
- Svefndrungi, sundl eða höfuðverkurLeitið til læknis
- Svimi þegar staðið er uppLeitið til læknis
- Sviti og hrollurLeitið til læknis
- Útbrot og mikill kláðiLeitið til læknis
- Þróttleysi, svefnleysiLeitið til læknis
- Þvagtregða, aukin tíðni þvaglátaLeitið til læknis
- KramparLeitið strax til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Róandi lyf, svefnlyf, þunglyndislyf, sefandi lyf, sum ofnæmislyf, uppsölulyf og aðrir ópíóíðar eða áfengi, geta eflt aukaverkanir, einkum öndunarbælingu. Sefandi lyf og sum ofnæmislyf, uppsölulyf og parkinsonslyf geta aukið á andkólínvirkar aukaverkanir, svo sem hægðatregðu, munnþurrk eða truflanir á þvaglátum. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta aukið sefandi áhrif lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með Addisonssjúkdóm
- þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með lungnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil
- þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
- þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
- þú eigir vanda til þess að fá blóðþrýstingsfall
- þú sért með aukinn heilaþrýsting
- þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
- þú sért með þarmalömun








