Pevaryl (Heilsa)
Sveppalyf við húðsjúkdómum
Lausasölulyf
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EkónazólSkráð 27. apríl 1978
Ekónazól, virka efnið í Pevaryl, hefur sveppaheftandi verkun. Það hefur áhrif á sveppategundir sem eru algengastar að valda sýkingum í húð og leggöngum. Lyfið hefur einnig áhrif á nokkrar tegundir baktería. Pevaryl er notað við sveppasýkingum í húð og á kynfærum en það hefur ekki áhrif á sveppasýkingar undir nöglum eða í hársverði. Kremið er hentugt við öllum sveppasýkingum í húð, óháð gerð þeirra eða staðsetningu. Legstílar eru notaðir við leggangabólgu og skapabólgu.
Notkun á lyfjum
LyfjaformÚtvortis krem og legstílar.
Venjulegar skammtastærðirKrem: Borið á sýkt húðsvæði kvölds og morgna. Til að fyrirbyggja endursýkingu þarf að halda meðferð áfram í 2 vikur eftir að einkenni sýkingar eru horfin. Á kynfæri: Borið á skapabarma og/eða getnaðarlim 2-3svar á dag þar til einkenni hverfa og í 3 daga til viðbótar. Legstílar: 1 stíll í senn 3 kvöld í röð.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið byrjar strax að verka en einkenni sýkingarinnar geta þó varað í einhvern tíma eftir að byrjað er að nota lyfið.
VerkunartímiLegstílar: Um sólarhringur. Útvortis lyfjaform: 8-24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið er aðeins notað í tiltekinn tíma við tilfallandi sýkingu.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunEkónazól er aðeins ætlað við tilfallandi sýkingum.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Kláði, sviði, roði, mikill verkurLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Útbrot, bjúgur og mikill kláðiHætta notkun
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
MeðgangaLyfið má ekki nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu nema samkvæmt læknisráði.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára nema samkvæmt læknisráði.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÁfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðEfni í Pevaryl legkremi og -stílum geta skemmt latexsmokka og -hettur. Varist að lyfið berist í augu.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








