Pinex
Verkjalyf
Lausasölulyf/Lyfseðilsskylt
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: ParacetamólSkráð 1. júlí 2008
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum sé engin bólga fyrir. Verkjastillandi áhrif paracetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Það ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga.
Notkun á lyfjum
LyfjaformMixtúra til inntöku og endaþarmsstílar.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir: 500-1000 mg í senn 1-4 sinnum á dag. Börn: 10-15 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn 1-4 sinnum á dag. Mixtúran er með jarðarberjabragði.
Hversu langur tími uns verkun kemur framVerkjastillandi áhrif: Almennt innan 30 mín. Hitalækkandi áhrif: 30-60 mín.
Verkunartími4-6 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEf lyfið er tekið að staðaldri: Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku lyfsins þegar þess gerist ekki lengur þörf.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Mjög stórir skammtar geta valdið lifrarskemmdum, en einkenni eitrunar koma oft ekki fram fyrr en eftir nokkra daga. Hafðu því alltaf samband við lækni ef mjög stórir skammtar eru teknir, jafnvel þótt ekki verði vart neinna einkenna.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru teknar.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Roði í slímhimnu endaþarms (stílar)Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- GulaLeitið til læknis
- Útbrot og mikill kláðiLeitið til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt getur dregið úr áhrifum paracetamóls.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnSkammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir. Lyfið veldur sjaldan aukaverkunum og hentar því vel eldra fólki.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðVirkir áfengissjúklingar mega ekki taka lyfið. Sjúklingar með lifrarsjúkdóm mega ekki taka lyfið.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








