Prevenar 20
Lyfseðilsskylt
Prevenar 20 er bóluefni gegn pneumókokkum. Það er gefið einstaklingum 18 ára og eldri til að hjálpa við að koma í veg fyrir sjúkdóma eins og lungnabólgu (sýkingu í lungum), sýklasótt (sepsis) eða bakteríudreyra (bakteríur í blóðrás) og heilahimnubólgu. Prevenar 20 er 20-gilt bóluefni sem þýðir að það veitir vörn gegn 20 gerðum Streptococcus pneumoniae bakteríunnar. Bóluefnið virkar með því að örva líkamann til að mynda eigin mótefni, sem vernda þig gegn þessum sjúkdómum.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Eins og við á um öll bóluefni getur Apexxnar valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum. Látið lækninn vita tafarlaust ef vart verður við merki um eftirtalda alvarlega aukaverkun: þrota í andliti, vörum, munni tungu eða koki (bjúgur), andnauð (mæði), blásturshljóð í lungum (berkjukrampi) – þetta geta verið merki um alvarleg ofnæmisviðbrögð svo sem bráðaofnæmi, þ.m.t. lost.
- HitiLeitið til læknis
- HöfuðverkurLeitið til læknis
- Liðverkir, vöðvaverkirLeitið til læknis
- Óþægindi á stungustaðLeitið til læknis
- ÞreytaLeitið til læknis
- Kláði á stungustað, bólgnir eitlar í hálsi, handarkrika eða nára (eitlakvilli), ofsakláði á stungustað (ofsakláði) og kuldahrollurLeitið til læknis
- Ógleði, niðurgangur, uppköstLeitið til læknis
- Útbrot og þroti í andliti, vörum, munni, tungu eða hálsi sem getur leitt til erfiðleika við að kyngja eða anda (ofsabjúgur)Leitið til læknis
Milliverkanir
Mismunandi bóluefni sem gefin eru með sprautu á alltaf að gefa á mismunandi stungustaði.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með skert ónæmiskerfi








