Prolia

Lyf við sjúkdómum í beinum | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Denósúmab

Markaðsleyfishafi: Novartis Europharm | Skráð: 1. október, 2010

Beinþynning er sjúkdómur sem lýsir sér í aukinni hættu á beinbrotum. Líkaminn er stöðugt að eyða gömlum beinvef og mynda nýjan og ríkir jafnvægi þar á milli ef allt er eðlilegt. Við beinþynningu þá raskast þetta jafnvægi og beintap verður meira en nýmyndunin. Beinin verða því þynnri og brothættari fyrir vikið. Konur eftir tíðahvörf eru í meiri hættu að fá beinþynningu en aðrir og er hægt að draga úr hættunni með kvenhormónagjöf. Heilsusamlegt líferni, næg kalk- og D-vítamíntaka og hreyfing eru einnig allt þættir sem minnka líkur á beinþynningu. Beinþynning liggur í ættum en getur líka m.a. tengst illkynja sjúkdómum og verið aukaverkun sumra lyfja. Margir sem eru með beinþynningu hafa engin einkenni og því er hún oft ekki greind fyrr en kemur að fyrsta beinbroti. Mestar líkur á beinbrotum eru í hrygg, mjöðmum og framhandlegg. Prolia inniheldur denosumab, prótein (einstofna mótefni) sem hefur áhrif á virkni annars próteins, til meðferðar við beintapi og beinþynningu. Meðferð með Prolia styrkir bein og dregur úr líkum á beinbrotum. Prolia er ætlað til meðferðar við beinþynningu hjá konum eftir tíðahvörf og hjá fullorðnum körlum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Lyfið er eingöngu til sem stungulyf sem er gefið undir húð á læri, kvið eða upphandlegg en á móti kemur að aðeins þarf að gefa lyfið á 6 mánaða fresti.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf sem er gefið undir húð á læri, kvið eða upphandlegg

Venjulegar skammtastærðir:
Stungulyf 60 mg sem er gefið á 6 mánaða festi

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að verka.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Mælt er með töku kalks og D-vítamíns samhliða lyfjagjöfinni nema tryggt sé að nægjanlegt magn af þessum efnum fáist úr fæðunni.

Geymsla:
Geymið í kæli (2°C – 8°C). Má ekki frjósa. Geymið í upprunalegum umbúðum til varnar gegn ljósi. Áfylltu sprautuna má taka úr kæli til að hún nái stofuhita (allt að 25°C) fyrir inndælingu. Þá verður inndælingin þægilegri. Eftir að sprautan hefur verið tekin úr kæli til að ná stofuhita (allt að 25°C), verður að nota hana innan 30 daga.

Ef skammtur gleymist:
Ef skammtur af Prolia gleymist, skal gefa inndælinguna svo fljótt sem auðið er. Eftir það á að tímasetja inndælingar á 6 mánaða fresti frá dagsetningu þeirrar inndælingar.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Í sjaldgæfum tilvikum fá sjúklingar sem nota Prolia sýkingar í húð (aðallega húðbeðsbólgu). Láttu lækninn tafarlaust vita ef þú finnur fyrir einhverjum eftirtalinna einkenna meðan á meðferð með Prolia stendur: þroti og roði í húð sem algengast er að komi fram á fótlegg, ásamt hita og eymslum í húðinni og hugsanlega með einkennum um hækkaðan líkamshita. Í sjaldgæfum tilfellum geta sjúklingar sem nota Prolia fundið fyrir verkjum í munni og/eða kjálka, þrota eða sárum sem ekki gróa í munni eða kjálka, útferð úr sári, doða eða tilfinningu um aukna þyngd í kjálka, eða lausri tönn. Þetta gætu verið einkenni um beinskemmdir í kjálka (beindrep). Láttu lækninn eða tannlækni vita tafarlaust ef þú finnur fyrir þess háttar einkennum meðan á meðferð með Prolia stendur og eftir að meðferð hefur verið stöðvuð. Í sjaldgæfum tilfellum geta sjúklingar sem nota Prolia haft lítið magn kalsíums í blóði (blóðkalsíumlækkun). Einkennin eru m.a. krampar, kippir eða sinadráttur í vöðvum, og/eða dofi eða náladofi í fingrum, tám eða umhverfis munn og/eða flog, rugl, eða meðvitundarleysi. Ef eitthvað af þessu á við um þig skaltu láta lækninn vita tafarlaust. Lítið kalsíum í blóði getur einnig leitt til breytingar á hjartslætti sem er kölluð lenging QT-bils og er greinanleg á hjartalínuriti.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Blóðug uppköst eða blóð í hægðum        
Flensulík einkenni          
Höfuðverkur          
Kviðverkir, niðurgangur          
Kyngingartregða, sár í vélinda og bólgin tunga        
Ógleði, meltingartruflanir          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir í liðum og vöðvum          
Verkur fyrir brjósti        
Vöðvakrampar, stirðleiki          

Milliverkanir

-

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með alvarlegan nýrnasjúkdóm
  • þú sért með aðrar truflanir á efnaskiptum steinefna
  • þú sért með lágt kalsíum í blóði

Meðganga:
Ekki er mælt með notkun Prolia á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort Prolia skilst út í brjóstamjólk. Mikilvægt er að þú látir lækninn vita ef þú ert með barn á brjósti eða fyrirhugar að hafa barn á brjósti.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Aukaverkanir , svo sem sundl, geta haft áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Sé áfengis neytt í miklu magni eykst hættan á byltum sem eykur hættuna á að sjúklingar detti og brotni.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.