Pulmozyme

Hósta- og kveflyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Dornase alfa

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. janúar, 1997

Pulmozyme er lyf sem bætir lungnastarfsemi þeirra sem þjást af Cystic Fibrosis (CF), en hann er meðfæddur arfgengur slímseigjusjúkdómur. Mismunandi er hvenær fyrstu einkenni CF koma í ljós. Sjúkdómseinkenni stafa af því að útkirtlar, m.a. svitakirtlar, slímkirtlar öndunarfæranna og briskirtillinn sem framleiðir meltingarhvata, starfa ekki eðlilega. Dornase alfa inniheldur ákveðið prótein sem klýfur utanfrumu DNA en í slímuppgangi er mikið magn af utanfrumu DNA. Dornase alfa minnkar þannig verulega seigjustig slímuppgangs við slímseigjusjúkdómi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Innúðalyf.

Venjulegar skammtastærðir:
2,5 mg (2.500 einingar) í senn 1-2svar á dag af óþynntu lyfi til innöndunar.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 15 mín.

Verkunartími:
Um 18-24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá og varið sterku ljósi.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Þegar meðferð var rofin sýndu rannsóknir að bætt lungnastarfsemi hverfur fljótt sé lyfjagjöf hætt. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Útbrot og mikill kláði          
Verkur fyrir brjósti, mæði        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 5 ára.

Eldra fólk:
Venjulega ekki notað. Sumir sjúklingar eldri en 21 árs geta haft gagn af 2,5 mg skammti 2svar á dag.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.