Quetiapin Medical Valley

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sefandi lyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G/0: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: QuetíapínSkráð 1. september 2019

Quetiapin Medical Valley inniheldur virka efnið quetíapín. Lyfið er sefandi og er notað til að meðhöndla geðklofa, meðal til alvarlegar geðhæðarlotur, alvarlegar geðlægðarlotur og sem viðbótarmeðferð við alvarlegum geðlægðarlotum hjá sjúklingum með alvarlegt þunglyndi. Það hefur áhrif á mörg boðefni í heila eins og serótónín og dópamín. Quetíapín er óvenjulegt sefandi lyf og notkun þess fylgja vægar hreyfitruflanir sem líkjast einkennum parkinsonsveiki og ósjálfráðra hreyfinga. Álitið er að með sefandi lyfjum, sem aðeins vægar hreyfitruflanir fylgja, sé síður hætta á að síðkomnar hreyfitruflanir láti kræla á sér.

Tafla 50 mg Forðatafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir50-800 mg á dag í einum skammti. Töflurnar gleypist heilar án matar. Ekki má skipta þeim, tyggja þær eða mylja. Lyfið skal taka að minnsta kosti 1 klst fyrir máltíð eða fyrir svefn.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan viku.
VerkunartímiA.m.k. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Þegar meðferð er hætt skal minnka skammta smám saman á a.m.k. 1-2 vikum til að draga úr líkum á fráhvarfseinkennum.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
LangtímanotkunEkkert bendir til annars en að notkun lyfsins í lengri tíma sé án vandkvæða. Síðkomnar hreyfitruflanir (tardive dyskinesia), sem lýsa sér sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum og eru algengar aukaverkanir langtímanotkunar margra sefandi lyfja, virðast ekki fylgja inntöku quetíapíns.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er svefnhöfgi sem kemur mest fram við upphaf notkunar, við áframhaldandi notkun minnkar sú aukaverkun. Við notkun lyfsins hefur sést lækkun á magni skjaldkirtilshormóna á fyrstu vikum notkunar en lækkunin verður ekki frekari við áframhaldandi notkun.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Aukin matarlyst
    Leitið til læknis
  • Bólga í nefi, mæði
    Leitið til læknis
  • Hækkun á blóðsykri
    Leitið til læknis
  • Hiti
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, þróttleysi
    Leitið til læknis
  • Hraður hjartsláttur
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, uppköst
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur, hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Óeðlilegir draumar, martraðir
    Leitið til læknis
  • Skapstyggð
    Leitið til læknis
  • Svefnhöfgi, yfirlið, sundl
    Leitið til læknis
  • Svimi þegar staðið er upp
    Leitið til læknis
  • Tormæli
    Leitið til læknis
  • Þokusýn
    Leitið til læknis
  • Þyngdaraukning, bjúgur
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Krampar
    Leitið strax til læknis
  • Sjálfsvígshugsanir og -hegðun
    Leitið strax til læknis
  • Ofhiti, breytt andlegt ástand, vöðvastífni, ósjálfráður óstöðugleiki
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Forðast ætti samhliða notkun sefandi lyfja. Greipaldinsafi hefur áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrarsjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með of lágan blóðþrýsting
  • þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
  • þú sért með eða hefur fengið þvagtregðu eða sért með stækkaðan blöðruhálskirtil.
MeðgangaLeitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki nota lyfið meðan á brjóstagjöf stendur.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkMinni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið getur haft slævandi áhrif og um leið haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur haft áhrif á virkni lyfsins og skal nota með varúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.