Ríflúxín

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sýrubindandi lyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Kalsíumkarbónat, MagnesíumkarbónatSkráð 21. mars 2024

Ríflúxín er magalyf sem inniheldur blöndu tveggja saltsambanda, annars vegar kalsíumkarbónat og hins vegar magnesíumkarbónat. Þessi saltsambönd tilheyra flokki lyfja sem nefnast sýrubindandi sambönd. Sýrubindandi sambönd eru sölt sem bindast magasýru eftir inntöku og minnka virkni hennar. Sýrubindandi sambönd eru notuð við ofmyndun magasýru en hún veldur magaóþægindum, brjóstsviða og nábít. Of mikil myndun magasýru í langan tíma getur leitt til sáramyndunar í vélinda, maga og skeifugörn.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTuggutöflur með myntubragði.
Venjulegar skammtastærðir1-2 tuggutöflur eftir þörfum. Töflurnar skal tyggja eða sjúga. Hámarksskammtur á sólarhring eru 11 töflur.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið slær á einkenni, s.s. brjóstsviða og nábít á innan við 15 mín. frá inntöku.
VerkunartímiMisjafn eftir ástandi sjúklings, en verkun ætti að haldast í minnst 1-2 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin. Forðastu að taka þetta lyf með miklu magni af mjólk eða mjólkurvörum.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistLyfið er venjulega tekið eftir þörfum.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEf lyfið er tekið við tilfallandi einkennum má hætta töku þess þegar einkennin eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunLyfið er helst ætlað til skammtímanotkunar við tilfallandi einkennum. Ef lyfið slær ekki á einkennin innan 7 daga skaltu hafa samband við lækni.

Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Ógleði, magaverkur, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Sýrubindandi sambönd geta haft áhrif á virkni járns og lyfja eins og tetracýklíns ef þau eru tekin inn samtímis. Láttu alltaf líða 2-3 klst. milli þess sem sýrubindandi sambönd og önnur lyf eru tekin.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið má taka á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið má taka samhliða brjóstagjöf.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur ert magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.