Rivaroxaban Sandoz
Lyfseðilsskylt
Rivaroxaban Sandoz inniheldur virka efnið rivaroxaban og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast segavarnarlyf. Það verkar með því að hindra virkni blóðstorkuþáttar (þáttur Xa) og þannig bæði meðhöndlar blóðtappa og dregur úr tilhneigingu til blóðtappamyndunar. Rivaroxaban Sandoz dregur úr hættu á endurteknum hjartaáföllum hjá fullorðnum og hættu á dauðsföllum úr hjarta- eða æðasjúkdómum.
| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Ferskjulita | Ferskjulita |
| Áletrun | 10 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 10 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Eins og við á um svipuð lyf (segavarnarlyf), getur lyfið valdið blæðingum sem geta hugsanlega verið lífshættulegar. Miklar blæðingar geta leitt til skyndilegs falls í blóðþrýstingi (lost). Í sumum tilvikum eru þessar blæðingar ef til vill ekki greinilegar. Hugsanlegar aukaverkanir sem geta verið merki um blæðingu: Greindu lækninum tafarlaust frá því, ef þú færð einhverjar af eftirfarandi aukaverkunum: - langvarandi eða mikla blæðingu - verulegt máttleysi, þreytu, fölva, sundl, höfuðverk, óútskýrðan þrota, mæði, brjóstverk eða hjartaöng, sem geta verið merki um blæðingu.
- BlæðingarLeitið til læknis
- Uppköst, ógleði, kviðverkir og meltingatruflanirLeitið til læknis
- Verkir í útlimumLeitið til læknis
- Höfuðverkur, svimi, þreyta og máttleysiLeitið strax til læknis
- Sundl, lágur blóðþrýstingurLeitið strax til læknis
- Hraður hjartsláttur, yfirliðLeitið til læknis
- GulaLeitið strax til læknis
- Mæði, verkur fyrir brjóstiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Ekki má nota Rivaroxaban ásamt tilteknum öðrum lyfjum sem draga úr blóðstorku, svo sem prasugrel eða ticagrelor, nema aspiríni og clopidogrel/ticlopidíni. Jóhannesarjurt (Hypericum perforatum), náttúrulyf við þunglyndi má ekki nota samhliða lyfinu.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of háan blóðþrýsting
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir blæðingartilhneigingu
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hafir verið með magasár, blæðingu eða gat í meltingarvegi
- þú sért með gervihjartalokur
| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Ferskjulita | Ferskjulita |
| Áletrun | 10 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 10 mg |








