Rivaroxaban Viatris

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Segavarnarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: RívaroxabanSkráð 1. febrúar 2026

Rivaroxaban Viatris inniheldur virka efnið rivaroxaban og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast segavarnarlyf. Það verkar með því að hindra virkni blóðstorkuþáttar (þáttur Xa) og þannig bæði meðhöndlar blóðtappa og dregur úr tilhneigingu til blóðtappamyndunar. Rivaroxaban Viatris dregur úr hættu á endurteknum hjartaáföllum hjá fullorðnum og hættu á dauðsföllum úr hjarta- eða æðasjúkdómum.

Tafla 10 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir1 tafla á dag. Töfluna skal ávallt taka með mat.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið byrjar fljótt að virka á blóðstorkuþætti.
VerkunartímiUm 7-10 dagar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef þú tekur 1 töflu á dag skaltu ekki taka tvo skammta innan sama dags til að bæta upp skammti sem gleymdist. Taktu næsta skammt næsta dag á sama tíma og venjulega. Ef þú tekur 15 mg 2svar á dag, þá má taka 2 töflur í einum skammti ef skammtur gleymdist (30 mg hámarks dagskammtur) en næsta dag skaltu halda áfram eins og venjulega
Hvernig á að hætta töku lyfsinsAukin hætta er á blóðtappamyndun þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Ofskömmtun eykur hættu á blæðingum.
LangtímanotkunÁn vandkvæða, en reglulegt eftirlit hjá lækni er nauðsynlegt.

Aukaverkanir

Eins og við á um svipuð lyf (segavarnarlyf), getur lyfið valdið blæðingum sem geta hugsanlega verið lífshættulegar. Miklar blæðingar geta leitt til skyndilegs falls í blóðþrýstingi (lost). Í sumum tilvikum eru þessar blæðingar ef til vill ekki greinilegar. Hugsanlegar aukaverkanir sem geta verið merki um blæðingu: Greindu lækninum tafarlaust frá því, ef þú færð einhverjar af eftirfarandi aukaverkunum: - langvarandi eða mikla blæðingu - verulegt máttleysi, þreytu, fölva, sundl, höfuðverk, óútskýrðan þrota, mæði, brjóstverk eða hjartaöng, sem geta verið merki um blæðingu.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Blæðingar
    Leitið til læknis
  • Uppköst, ógleði, kviðverkir og meltingatruflanir
    Leitið til læknis
  • Verkir í útlimum
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta og máttleysi
    Leitið strax til læknis
  • Sundl, lágur blóðþrýstingur
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hraður hjartsláttur, yfirlið
    Leitið til læknis
  • Gula
    Leitið strax til læknis
  • Mæði, verkur fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Ekki má nota Rivaroxaban ásamt tilteknum öðrum lyfjum sem draga úr blóðstorku, svo sem prasugrel eða ticagrelor, nema aspiríni og clopidogrel/ticlopidíni. Jóhannesarjurt (Hypericum perforatum), náttúrulyf við þunglyndi má ekki nota samhliða lyfinu.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með of háan blóðþrýsting
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir blæðingartilhneigingu
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir verið með magasár, blæðingu eða gat í meltingarvegi
  • þú sért með gervihjartalokur
MeðgangaEkki má taka lyfið ef þú ert barnshafandi.
BrjóstagjöfEkki má taka lyfið ef þú ert með barn á brjósti.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum sem eru léttari en 30kg.
AksturLyfið getur valdið sundli (algeng aukaverkun) eða yfirliði (sjaldgæf aukaverkun). Akið ekki og notið hvorki tæki né vélar ef þessi einkenni koma fram.
AnnaðRivaroxaban Viatris inniheldur laktósa, Ef óþol fyrir sykrum hefur verið staðfest skal hafa samband við lækni áður en þú tekur lyfið.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.