Ryeqo

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Hormónalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Estradíól, Noretísterón, RelúgólixSkráð 16. júlí 2021

Ryeqo er ætlað til meðferðar við meðalsvæsnum til svæsnum einkennum vöðvaæxlis í legi hjá fullorðnum konum á barneignaraldri. Ryeqo innihledur þrjú virk lyf relúgólix, estradíól og noretísterón. Relúgólix er GnRH viðtakahemill og binst við og hamlar GnRH viðtökum í framhluta heiladinguls. Hömlun viðtakanna veldur minni losun gulbússtýrihormóns og eggbússtýrihormóns sem að kemur þá í veg fyrir vöxt og þroska eggbús og dregur þar með úr framleiðslu estrógens. Þetta hamlar svo egglosi og þroska gulbús, sem kemur í veg fyrir framleiðslu prógesteróns. Þar af leiðandi veitir Ryeqo fullnægjandi getnaðarvörn þegar það er notað í a.m.k. einn mánuð. Estradíól er sama hormón og líkaminn framleiðir, þegar estradíól er gefið dregur það úr einkennum sem tengjast estrógenskorti, svo sem einkennum tengd æðastjórn og minnkaðri beinþéttni. Noretísterónasetat er tilbúið prógestógen. Þar sem estrógen stuðla að vexti legslímhúðar eykur óhamlað estrógen hættuna á ofvexti í legslímhúð og krabbameini. Þegar prógestógeni er bætt við dregur það úr hættu á ofvexti í slímhúð af völdum estrógens hjá konum sem ekki hafa farið í legnám.

Tafla 40/1/0,5 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformFilmhúðuð tafla til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir1 tafla 1 sinni u.þ.b á sama tíma dags. Í upphafi meðferðar verður að taka fyrstu töfluna innan 5 daga frá byrjun tíðablæðinga. Ef meðferð hefst á einhverjum öðrum degi tíðahringsins geta óreglulegar og/eða miklar blæðingar orðið í upphafi
Hversu langur tími uns verkun kemur framEins mánaðar notkun hindrar Ryeqo egglos hjá konum sem taka ráðlagðan skammt og veitir fullnægjandi getnaðarvörn.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEf gleymist að taka skammt verður að taka hann eins fljótt og hægt er og halda síðan áfram næsta dag á venjulegum tíma. Ef gleymist að taka skammt í tvo eða fleiri daga samfellt skal nota getnaðarvörn án hormóna næstu sjö daga meðferðar
Hvernig á að hætta töku lyfsinsÞað á að hætta töku lyfsins í samraði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Ofskömmtun getur valdið ógleði og uppköstum, og fráhvarfsblæðingar geta komið fyrir hjá konum.
LangtímanotkunÁn vandkvæða. Mælt er með að framkvæma beinþéttnimælingu eftir að meðferð hefur verið veitt í eitt ár.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Blæðing úr leggöngum
    Leitið til læknis
  • Hárlos
    Leitið til læknis
  • Hitakóf, aukin svitamyndun, nætursviti
    Leitið til læknis
  • Meltingaróþægindi
    Leitið til læknis
  • Minnkuð kynhvöt
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot og kláði
    Leitið til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með aðra hjarta- eða æðasjúkdóma
  • þú sért með krabbamein í legi eða brjóstum
  • þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir haft óútskýrðar blæðingar frá legi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með beinþynningu
  • þú hafir sögu um þunglyndi
MeðgangaRyeqo má ekki nota á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið skilst út í bjróstamjólk. Það má ekki nota lyfið með barn á brjósti og ekki fyrr en 2 vikum eftir að notkun lyfsins er hætt.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum eða unglingum yngri en 18 ára.
Eldra fólkLyfið er ekki ætlað öldruðum.
AksturLyfið hefur engin áhrif á aksturshæfni.
AnnaðStöðva þarf meðferð með hormónagetnaðarvörnum þar sem samhliðanotkun hormónagetnaðarvarna er ekki ráðlögð. Nota verður getnaðarvörn án hormóna í a.m.k. 1 mánuð eftir upphaf meðferðar. Eftir a.m.k. eins mánaðar notkun hindrar Ryeqo egglos hjá konum sem taka ráðlagðan skammt og veitir fullnægjandi getnaðarvörn.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.