Sertralin WH

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Geðdeyfðarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: SertralínSkráð 1. ágúst 2019

Sertralin WH er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila og kallast sérhæfðir serótónín endurupptökuhemlar (SSRI-lyf). Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Sertralin, virka efnið í Sertralin WH, og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Lyfin hafa ekki eins róandi verkun og þau eldri og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Þau valda heldur ekki alvarlegum eitrunareinkennum við ofskömmtun. Sertralin er notað við þunglyndi, kvíðaröskun, þráhyggju- og árátturöskun (obsessive-compulsive disorder), ofsahræðslu (panic disorder), félagsfælni og kvíða í kjölfar áfalls.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir25-200 mg í senn einu sinni á dag með eða án matar.
Hversu langur tími uns verkun kemur framBati getur sést innan 7 daga en það getur liðið nokkrar vikur áður en þú finnur fyrir bata.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin en ekki taka lyfið inn ásamt greipaldinsafa.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistSlepptu þeim sem gleymdist og haltu áfram að taka lyfið eins og venjulega eftir það. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Læknir mun minnka skammta smám saman á nokkurra vikna tímabili.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Taktu umbúðir lyfsins alltaf með þér, hvort sem einhverjar töflur eru eftir eða ekki. Einkenni ofskömmtunar geta verið svefnhöfgi, ógleði og uppköst, hraður hjartsláttur, skjálfti, æsingur, sundl og í mjög sjaldgæfum tilfellum meðvitundarleysi.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði. Aukaverkanirnar eru flestar skammtaháðar, þ.e. líklegra er að þær komi fram eftir því sem skammtar eru stærri, og verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hjartsláttarónot, verkur fyrir brjósti
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, sundl, þreyta
    Leitið til læknis
  • Hreyfitruflanir, skjálfti
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, hægðatregða, uppköst
    Leitið til læknis
  • Lystarleysi
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur, aukin svitamyndun, hitasteypur
    Leitið til læknis
  • Ógleði, niðurgangur, meltingartruflanir
    Leitið til læknis
  • Óreglulegar tíðablæðingar
    Leitið til læknis
  • Skapgerðarbreytingar
    Leitið til læknis
  • Suð fyrir eyrum, breytt húðskyn og sjón
    Leitið til læknis
  • Svefntruflanir, svefnhöfgi
    Leitið til læknis
  • Truflun á kynlífi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Brjóstastækkun karlmanna
    Leitið til læknis
  • Hraður hjartsláttur, hár blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Gula
    Leitið strax til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og greipaldinsafi geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkislyfjum til inntöku.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir greinst með geðhæð eða geðhvarfasýki
  • þú sért með augnsjúkdóm
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfUpplýsingar skortir til þess að meta áhættu fyrir barnið ef mjólkandi móðir tekur lyfið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiEkki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Annað.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.