Simvastatin Actavis
Blóðfitulækkandi lyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Simvastatín
Markaðsleyfishafi: Actavis | Skráð: 1. júní, 2009
Simvastatín, virka efnið í lyfinu, dregur úr blóðfitu. Lyfið tilheyrir flokki lyfja sem hindrar kólesterólmyndun í lifur og veldur því að kólesteról og fita lækkar í blóði. Simvastatín er gefið sjúklingum með mikið af kólesteróli í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Simvastatín er einnig notað í þeim tilgangi að auka lífslíkur og draga úr þörf á aðgerðum hjá sjúklingum sem hafa fengið kransæðastíflu og sjúklingum með hjartaöng.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
5-80 mg í senn að kvöldi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2 vikur, hámarkssvörun fæst eftir 4-6 vikur.
Verkunartími:
Um 1 sólarhringur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Minni fituneysla er þáttur í meðferð.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymist á dimmum stað.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á að sjúkdómur versni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Notkun lyfsins til lengri tíma getur haft áhrif á lifrarstarfsemi. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi og vöðvastyrk á meðan lyfið er tekið.
Aukaverkanir
Aukaverkanir af völdum lyfsins eru sjaldgæfar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | |||||||
Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvum |
Milliverkanir
Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins. Forðast skal samhliða notkun á greipaldinsafa.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Diacomit Lyfjaver
- Ikervis
- Klacid
- Lopid
- Lynparza
- Sandimmun Neoral
- Sporanox
- Vfend
- Voriconazole Accord
Getur haft áhrif á
- Afinitor
- Amló
- Amlodipin Bluefish
- Amlodipin Medical Valley
- Amlodipin Zentiva
- Amlodipine Vitabalans
- Aspendos
- Candizol
- Cardil
- Certican
- Cordarone
- Deferasirox Accord
- Diflucan
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Diltiazem HCl Alvogen (áður Dilmin)
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- Epidyolex
- Erleada
- Eslicarbazepine acetate STADA
- Everolimus WH
- Exforge
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Isoptin Retard
- Modafinil Bluefish
- Modiodal
- Multaq
- Norvasc
- Paxlovid
- Rimactan
- Scemblix
- Ursochol
- Venclyxto
- Veraloc Retard
- Warfarin Teva
- Zebinix
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú hafir einhvern tíma átt við áfengisvandamál að stríða
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Getur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi i áfengisdrykkju.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.