Simvastatin Bluefish
Styrkleikar:
Blóðfitulækkandi lyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: SimvastatínSkráð 1. ágúst 2012
Simvastatín, virka efnið í lyfinu, dregur úr blóðfitu. Lyfið tilheyrir flokki lyfja sem hindrar kólesterólmyndun í lifur og veldur því að kólesteról og fita lækkar í blóði. Simvastatín er gefið sjúklingum með mikið af kólesteróli í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Simvastatín er einnig notað í þeim tilgangi að auka lífslíkur og draga úr þörf á aðgerðum hjá sjúklingum sem hafa fengið kransæðastíflu og sjúklingum með hjartaöng.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Ljósbleikur | Ljósbleikur |
| Áletrun | A | 01 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 10 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir5-80 mg í senn að kvöldi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 2 vikur, hámarkssvörun fæst eftir 4-6 vikur.
VerkunartímiUm 1 sólarhringur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðMinni fituneysla er þáttur í meðferð.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymist á dimmum stað.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á að sjúkdómur versni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunNotkun lyfsins til lengri tíma getur haft áhrif á lifrarstarfsemi. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi og vöðvastyrk á meðan lyfið er tekið.
Aukaverkanir
Aukaverkanir af völdum lyfsins eru sjaldgæfar.
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- GulaLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvumLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins. Forðast skal samhliða notkun á greipaldinsafa.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir einhvern tíma átt við áfengisvandamál að stríða
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkMinni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi i áfengisdrykkju.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Ljósbleikur | Ljósbleikur |
| Áletrun | A | 01 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 10 mg |








