LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirByrjað er á litlum skömmtum og þeir síðan smám saman auknir þangað til að viðunandi árangur næst. Algengt er að fullur skammtur sé á bilinu 1-2 g á dag. Töflunum má skipta.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 1 klst.
Verkunartími2-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef færri en 2 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á því að sjúkdómurinn versni. Ef töku lyfsins er hætt skyndilega getur það valdið mjög alvarlegum einkennum.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafið umbúðir lyfsins við höndina.
LangtímanotkunAukaverkanir lyfsins, svo sem ósjálfráðar hreyfingar, hreyfitregða og breytingar á andlegri líðan, getur komið fram við langtímanotkun. Þessar aukaverkanir má yfirleitt koma í veg fyrir eða gera þolanlegar með því að minnka skammta af levódópa.