Sitagliptin/Metformin Medical Valley

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum

Sitagliptin/Metformin Medical Valley

Sykursýkilyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Metformín, SitagliptínSkráð 18. janúar 2022

Sitagliptin/Metformin Medical Valley inniheldur virku efnin metformín og sitagliptín og er við sykursýki. Sitagliptín tilheyrir flokki sykursýkilyfja sem nefnist thíazólidíndíónlyf. Verkunarmáti metformíns er ekki að fullu þekktur en það eykur áhrif insúlíns á vefi líkamans, minnkar sykurnýmyndun í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, eða insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, eða insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og þarf að vera til staðar í líkamanum til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Lyfið er ýmist notað eitt eða með, súlfónýlúrelyfjum (sem innihalda virku efnin glíbenklamíð, glípízíð, glíklazíð og glímepíríð), eða thíazólidíndíónlyfjum (sem innihalda virku efnin rósíglítazón, píóglítazón og vildagliptín) þegar notkun þessara lyfja, ásamt breyttu mataræði og líkamsþjálfun, hefur ekki borið viðunandi árangur. Í meltingarvegi líkamans eru ákveðin hormón (m.a. GLP-1 og GIP) sem taka þátt í stjórnun á jafnvægi blóðsykurs í líkamanum. Þau stuðla að aukinni insúlínframleiðslu og losun insúlíns úr briskirtli og minni framleiðslu á glúkósa í lifrinni. Heildaráhrifin eru aukin upptaka á sykri úr blóði inn í frumur líkamans. Í líkamanum er efni sem heitir dipeptíl peptíðasi-4 (DPP-4) en þetta efni brýtur þessi hormón niður og dregur þannig úr áhrifum þeirra og hækkar blóðsykur. Blóðsykurslækkandi verkun sitagliptíns felst í því að hindra DPP-4.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir1 tafla 2svar á dag með mat.
Hversu langur tími uns verkun kemur framEkki að fullu þekkt.
VerkunartímiA.m.k. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðBreytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Farðu á sjúkrahús ef þú finnur fyrir einkennum mjólkursýrublóðsýringar, svo sem kuldatilfinningu eða vanlíðan, alvarlegri ógleði eða uppköstum, magaverk, þyngdartapi af óþekktum orsökum, krampa í vöðvum eða hröðum andardrætti
LangtímanotkunTakmörkuð reynsla er af langtímanotkun lyfsins. Vegna sykursýkinnar er æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.

Aukaverkanir

Lyfið getur valdið of mikilli lækkun á blóðsykri. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur
    Leitið til læknis
  • Lágur blóðsykur
    Leitið til læknis
  • Nefstífla eða nefrennsli
    Leitið til læknis
  • Ógleði, vindgangur
    Leitið til læknis
  • Sýking í efri öndunarvegi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Brisbólga: Hiti og kviðverkir
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Þegar lyfið er tekið samtímis sykursýkilyfjum af flokki súlfónýlúrealyfja þá getur það valdið of mikilli blóðsykurslækkun.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða hafir fengið hjartaáfall
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú neytir áfengis í miklum mæli
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
  • þú sért með alvarlega sýkingu
  • þú sért með barn á brjósti
MeðgangaLyfið má ekki nota á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki taka lyfið ef þú ert með barn á brjósti.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir. En gæta skal varúðar með hækkandi aldri og fylgjast þarf sérstaklega með nýrnastarfsemi þar sem lyfið er skilið út um nýru.
AksturLyfið getur valdið sljóleika og svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis en það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því ekki að neyta áfengis.
ÍþróttirLeyfti við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.