Solifenacin Alvogen

Þvagfæralyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Sólifenacín

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 1. júní, 2013

Solifenacin Alvogen er notað við einkennum bráðs þvagleka og/eða tíðri þvaglátaþörf sem fram kemur hjá sjúklingum með ofvirka þvagblöðru. Virka efni lyfsins, sólifenacín, er sértækur samkeppnishindri á svonefnda kólínerga viðtaka og miðlar þannig slökun á sléttum vöðum er umlykja þvagblöðruna. Taugaboðefnið sem veldur samdrætti í þvagblöðruvöðvum hefur áhrif víðar í líkamanum. Margar aukaverkanir lyfsins, eins og munnþurrkur og hægðatregða, stafa af því að það dregur almennt úr áhrifum þessa boðefnis, þótt áhrifin verði alltaf mest á þvagblöðruvöðvann.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-10 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Full verkun kemur í fyrsta lagi eftir 4 vikur.

Verkunartími:
Um 1 sólarhringur eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef stórir skammtar eru teknir eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er munnþurrkur. Annars þolist lyfið almennt vel.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Kviðverkir, meltingartruflanir          
Munnþurrkur          
Ógleði          
Sjóntruflanir          
Þvagfærasýkingar        
Þvagtregða        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
  • þú sért með þvagtregðu
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með meltingarfærasjúkdóm
  • þú sért með taugakvilla

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið sjóntruflunum og í sjaldgæfum tilfellum svefndrunga og þreytu. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Hamlar myndun vasópressíns í heiladingli og eykur þannig þvagmyndun. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.