Soluprick Negativ kontrol
Lyfseðilsskylt
Soluprick Positiv og Negativ kontrol eru eingöngu ætluð til sjúkdómsgreiningar. Þau eru notuð til húðprófunar til að meta hvaða efni valda ofnæmisviðbrögðum. Soluprick Negativ kontrol mun ekki valda neinum viðbrögðum. Histamín tvíhýdróklóríðið í Soluprick Positiv Kontrol framleiðir jákvæð viðbrögð sem eru rauðkláðaþot með eða án roðaþots sem sýnir lækninum að húðprófunin virkar. Þessar prófanir eru sérstaklega mikilvægar ef þú hefur notað lyf sem draga úr virkni húðprófana t.d. andhistamín, sum þunglyndislyf eða staðbundin öflugur steraáburður.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Þar sem verið er að athuga það hvort fólk hafi ofnæmi þá er það þáttur í greiningunni að fólk fái staðbundnar aukaverkanir af þessu lyfi.
- Útbrot og kláði á stungustaðLeitið til læknis
- Bólga í húðLeitið til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Ofnæmislyf geta dregið úr viðbrögðum við húðprófinu. Það sama á við um svokölluð þríhringlaga geðdeyfðarlyf og barkstera, hvort sem þeir eru teknir inn eða notaðir staðbundið. Mælt er með því að hætta notkun þessara lyfja nokkrum dögum eða vikum fyrir húðprófið.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf








