Soluprick SQ ALK555 - Kattahár

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum

Soluprick SQ ALK555 - Kattahár

Sjúkdómsgreinarefni

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Ofnæmisvaka extraktSkráð 1. júlí 1999

Soluprick SQ innheldur ofnæmisvaka extrökt sem innihalda þá ofnæmisvaka sem eru mikilvægastir fyrir ofnæmissvar og er það notað til þess að greina ofnæmi í ofnæmisprófi. Prófið felst í því að dropi af ofnæmisvakalausn er settur á húðina og stungið í gegnum hana með litlum pinna. Í lausninni er þar til gerður ofnæmisvaldur og henni til samanburðar eru notaðar tvenns konar lausnir, önnur inniheldur histamín og veldur ofnæmisviðbrögðum hjá öllum en hin inniheldur saltvatn og veldur engum viðbrögðum. Sé ofnæmi til staðar kemur fram innan 10-20 mínútna roði og þroti á þeim stað sem prófið var gert og er þannig hægt að greina hvort viðkomandi sé með ofnæmi fyrir tilteknum ofnæmisvaka.

Notkun á lyfjum

LyfjaformÚtvortis lausn.
Venjulegar skammtastærðirMeðferðin er venjulega í höndum sérfræðinga í ofnæmis- og ónæmislækningum sem ákveða skammtastærðir.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram15 mín. eða meira.
VerkunartímiEinstaklingsbundið.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist á köldum stað (2-8°C) í upprunalegum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymsluþol lyfsins eftir opnun er 6 mánuðir.
Ef skammtur gleymistÁ ekki við.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturÁ ekki við.
LangtímanotkunLyfið er ekki notað í langan tíma í einu.

Aukaverkanir

Þar sem verið er að athuga það hvort fólk hafi ofnæmi þá er það þáttur í greiningunni að fólk fái staðbundnar aukaverkanir af þessu lyfi.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Útbrot og kláði á stungustað
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Bólga í húð
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Ofnæmislyf geta dregið úr viðbrögðum við húðprófinu. Það sama á við um svokölluð þríhringlaga geðdeyfðarlyf og barkstera, hvort sem þeir eru teknir inn eða notaðir staðbundið. Mælt er með því að hætta notkun þessara lyfja nokkrum dögum eða vikum fyrir húðprófið.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaÓhætt er að nota lyfið á meðgöngu.
BrjóstagjöfÓhætt er að nota lyfið samhliða brjóstagjöf.
BörnVenjulegar skammtastærðir.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.