Spiriva

Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tíótrópíum

Markaðsleyfishafi: Boehringer Ingelheim | Skráð: 1. janúar, 2003

Spiriva er ætlað sjúklingum með langvinna lungnateppu. Tíótrópíum, virka efni lyfsins, er langvirkt og berkjuvíkkandi. Það veldur vöðvaslökun í lungnaberkjum, víkkar með því móti öndunarveginn og auðveldar öndun. Vegna langrar verkunar er tíótrópíum hentugt til viðhaldsmeðferðar við langvinnri lungnateppu. Áhrif tíótrópíums koma ekki strax fram eftir innöndun og því hentar það ekki sem neyðarlyf við einkennum astma.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Innöndunarduft.

Venjulegar skammtastærðir:
1 skammtur (18 míkrógrömm) með HandiHaler innöndunartæki einu sinni á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Hylkin má ekki gleypa.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 30 mín.

Verkunartími:
Um 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa. Lyfið geymist í 9 daga eftir að þynnuspjald hefur verið opnað.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar notkun lyfsins er hætt. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef barn notar lyfið eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkunin sem skráð hefur verið er munnþurrkur, en hann var venjulega vægur og hvarf oft með áframhaldandi meðferð.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot        
Munnþurrkur          
Sveppasýking í munni        
Sýking og bólga í nefi og koki        
Útbrot og mikill kláði          
Þvagtregða        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.