Strefen Honung & Eukalyptus
Lausasölulyf/Lyfseðilsskylt
Strefen inniheldur virka efnið flurbiprofen sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID). Þessi lyf verka með því að breyta því hvernig líkaminn bregst við sársauka, bólgu og háum hita. Strefen er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og verk í hálsi, eymslum og bólgu í hálsi og erfiðleikum við að kyngja. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Ef erting í munni kemur fram skal hætta flurbiprofen meðferð. HÆTTU NOTKUN lyfsins og hafðu strax samband við lækni eða lyfjafræðing ef þú færð: - Einkenni ofnæmisviðbragða eins og astma, óvænt önghljóð eða mæði, kláða, nefrennsli, húðútbrot o.s.frv. - Þrota í andliti, tungu eða hálsi sem valda öndunarerfiðleikum, hjartsláttarónot og blóðþrýstingsfall sem leiðir til losts (þetta getur komið fram jafnvel þegar lyfið er notað í fyrsta skipti). - Alvarleg húðviðbrögð eins og flagnandi húð eða blöðrumyndun á húð.
- Almennur kláði í húðLeitið til læknis
- Flökurleiki og niðurgangurLeitið til læknis
- Höfuðverkur, sundlLeitið strax til læknis
- Slappleiki, þreyta, syfjaLeitið til læknis
- Berkjukrampar hjá astmasjúklingumHætta notkun
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Það má nota asetýlsalisýlsýru 75mg/dag (Hjartamagnýl) samhliða með Strefen.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magasár eða magabólgur
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum, sérstaklega bólgueyðandi gigtarlyfjum
- þú hafir fengið heilablóðfall
- þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm








