Strefen Orange Sukkerfri

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: FlurbiprofenSkráð 1. nóvember 2016

Strefen Orange Sukkerfri inniheldur virka efnið flurbiprofen sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID). Þessi lyf verka með því að breyta því hvernig líkaminn bregst við sársauka, bólgu og háum hita. Strefen Orange Sukkerfri er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og verk í hálsi, eymslum og bólgu í hálsi og erfiðleikum við að kyngja hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.

Notkun á lyfjum

LyfjaformMunnsogstöflur
Venjulegar skammtastærðirSettu eina munnsogstöflu upp í munninn og sjúgðu hana hægt. Ávallt skal velta munnsogstöflunni um í munninum á meðan hún er sogin. Nota má eina munnsogstöflu á 3-6 klukkustunda fresti, eftir þörfum þó mest 5 munnsogstöflur á sólarhring. Ekki nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa, nema í samráði við lækni. Ef þér líður ekki betur, þér hefur versnað, eða ný einkenni koma fram skaltu hafa samband við lækninn eða lyfjafræðing
Hversu langur tími uns verkun kemur framVenjulega innan 30 mínútna.
VerkunartímiUm 3-6 klst.
GeymslaGeymið í upprunalegum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEkki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafið umbúðir lyfsins meðferðis. Einkenni ofskömmtunar eru meðal annars: ógleði eða uppköst, kviðverkur eða niðurgangur, sem er sjaldgæfara.Suð fyrir eyrum, höfuðverkur og blæðing í meltingarvegi er einnig möguleg.
LangtímanotkunLyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar

Aukaverkanir

Ef erting í munni kemur fram skal hætta flurbiprofen meðferð. HÆTTU NOTKUN lyfsins og hafðu strax samband við lækni eða lyfjafræðing ef þú færð: - Einkenni ofnæmisviðbragða eins og astma, óvænt önghljóð eða mæði, kláða, nefrennsli, húðútbrot o.s.frv. - Þrota í andliti, tungu eða hálsi sem valda öndunarerfiðleikum, hjartsláttarónot og blóðþrýstingsfall sem leiðir til losts (þetta getur komið fram jafnvel þegar lyfið er notað í fyrsta skipti). - Alvarleg húðviðbrögð eins og flagnandi húð eða blöðrumyndun á húð.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Almennur kláði í húð
    Leitið til læknis
  • Flökurleiki og niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, sundl
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Slappleiki, þreyta, syfja
    Leitið til læknis
  • Berkjukrampar hjá astmasjúklingum
    Hætta notkun

Milliverkanir

Það má nota asetýlsalisýlsýru 75mg/dag samhliða með lyfinu.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með magasár eða magabólgur
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum, sérstaklega bólgueyðandi gigtarlyfjum
  • þú hafir fengið heilablóðfall
  • þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm
MeðgangaEkki taka þetta lyf ef þú ert á síðasta þriðjungi meðgöngu. Ef þú ert á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu skaltu tala við lækninn áður en þú tekur lyfið.
BrjóstagjöfEkki taka þetta lyf ef þú ert með barn á brjósti nema í samráði við lækni.
BörnEkki skal nota lyfið handa börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólkAldraðir eru í aukinni hættu á alvarlegum aukaverkunum.
AksturEkki hafa verið gerðar neinar rannsóknir á hæfni til aksturs eða stjórnun véla. Sundl og sjóntruflanir eru hins vegar mögulegar aukaverkanir eftir inntöku bólgueyðandi gigtarlyfja. Ef þú finnur fyrir þessum áhrifum skaltu ekki aka eða stjórna vélum
ÁfengiÁfengisneysla samhliða getur aukið hættu á aukaverkunum, einkum blæðingum í meltingarvegi.
AnnaðLyfið er sykurlaust
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.