Symbicort Turbuhaler (Heilsa)
Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Búdesóníð, FormóterólSkráð 30. janúar 2001
Symbicort Turbuhaler inniheldur tvö virk efni, formóteról og búdesóníð. Búdesóníð er barksteri með bólgueyðandi verkun í lungum sem dregur úr astmaeinkennum og að astmi versni. Formóteról er langvirkt astmalyf. Það veldur vöðvaslökun í lungnaberkjum, víkkar öndunarveginn og auðveldar með þeim hætti öndun. Berkjuvíkkandi áhrif formóteróls valda því að búdesóníð kemst greiðar í lungun og hefur um leið aukin áhrif. Lyfið er notað í reglulegri meðferð á astma.
Notkun á lyfjum
LyfjaformInnöndunarduft.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir og börn 12 ára og eldri: 1-2 skammtar í senn 2svar á dag. Hver skammtur inniheldur 160 míkrógrömm búdesóníð og 4,5 míkrógrömm formóteról.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1-3 mín. eftir innöndun.
VerkunartímiUm 12 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Hafi astmalyf verið notað í stórum skömmtum eða í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman áður en notkun þess er hætt.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunMikilvægt er að læknir fylgist með astma svo að bólgur versni ekki án þess að sjúklingur verði þess var.
Aukaverkanir
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Erting í hálsi, hæsi og hóstiLeitið til læknis
- HjartsláttarónotLeitið til læknis
- Höfuðverkur, skjálftiLeitið til læknis
- Sveppasýking í munni og hálsiLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- SkapgerðarbreytingarLeitið til læknis
- Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanirLeitið strax til læknis
- ÖndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið lungnasýkingu, sér í lagi ef þú hefur fengið berkla
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Lægri styrkleiki (Symbicort mite) er fáanlegur fyrir börn 6-11 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á virkni lyfsins.
ÍþróttirBannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um einfaldaða undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.
AnnaðMikilvægt er að leiðbeina sjúklingi um að skola munninn með vatni eftir innöndun ráðlagðs skammts til að sporna við hættu á þruskusýkingu í munni og koki. Vera má að sjúklingurinn finni hvorki bragð né verði að öðru leyti var við lyfið þegar Turbuhaler er notað vegna þess hve lítið magn af lyfinu er í hverjum skammti.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








