Tafil Retard

Róandi og kvíðastillandi lyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Alprazólam

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. apríl, 1996

Tafil Retard, sem inniheldur virka efnið alprazólam, tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Lyf í þessum flokki hafa öll sama verkunarmáta, þau auka áhrif hamlandi taugaboðefnis (GABA) á vissum stöðum í heila og þau hafa öll róandi, kvíðastillandi, krampastillandi og vöðvaslakandi áhrif. Munur á benzódíazepínum felst í því hversu sérhæfð þau eru og langur verkunartími þeirra er. Alprazólam virðist vera meira kvíðastillandi en önnur benzódíazepín. Það slær fljótt á kvíða og veldur að öllu jöfnu ekki sljóleika. Þol myndast yfirleitt við róandi áhrifum lyfsins en síður við hinum kvíðastillandi. Alprazólam raskar að einhverju leyti eðlilegu svefnmynstri á þá leið að dregur úr draumsvefni. Þetta er þó skammtaháð, en það þýðir að breytingarnar verða meiri eftir því sem lyfjaskammtarnir eru stærri. Lyfið er notað vð flemtursröskun, með eða án víðáttufælni, kvíða, eirðarleysi og spennu.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir. 0,5-4 mg í senn 1-2svar á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á kvíða: 1-1½ klst.

Verkunartími:
Misjafn eftir einstaklingum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ef lyfið er tekið reglulega: Taktu lyfið ef innan við 1 klst. líður frá því að taka átti skammtinn. Annars skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar. Ef lyfið hefur verið tekið í langan tíma á ekki að hætta töku þess nema í samráði við lækni. Skammta skal minnka smám saman.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Alprazólam hentar ekki til langtímanotkunar. Lyfið er vanabindandi og fráhvarfseinkenni geta komið fram lengi eftir að notkun þess er hætt.


Aukaverkanir

Sljóleiki kemur fram hjá um 30% sjúklinga í upphafi meðferðar, en dvínar vanalega eftir nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Ósamhæfðar hreyfingar          
Skapgerðarbreytingar, ofskynjanir          
Sljóleiki          
Útbrot, kláði          
Öndunarbæling        

Milliverkanir

Alprazólam getur haft áhrif á getnaðarvarnarlyf til inntöku. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta dregið úr virkni lyfsins. Öll lyf sem hafa sljóvgandi áhrif á miðtaugakerfið geta aukið sljóvgandi áhrif alprazólams og ætti því að forðast að taka þau samtímis.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
  • þú sért með öndunarfærasjúkdóm
  • þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með kæfisvefn

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk. Þess vegna er það ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum. Minni skammtar eru notaðir.

Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með hæfni til að stjórna ökutæki. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:
Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Fíknarvandamál:
Tafil Retard getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.