Testogel (Heilsa)

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Karlhormón

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: TestósterónSkráð 1. desember 2003

Testogel inniheldur karlhormónið testósterón. Testósterón myndast í mestu magni í eistum karla en líka í litlu magni í eggjastokkum kvenna og nýrnahettum hjá báðum kynjum. Hormónið hefur áhrif á líkamsbyggingu, kynfæri, fitudreifingu, efnaskipti og hárvöxt en hefur auk þess vefjauppbyggjandi verkun. Testósterón er gefið karlmönnum ef lítið eða ekkert myndast af því í líkamanum, t.d. vegna sjúkdóma eða erfðagalla. Í vissum tilfellum er testósterón gefið konum sem eru með illkynja æxli í kynfærum eða brjóstum. Testósterón hefur nær enga virkni ef það er tekið í töfluformi. Testogel er notað sem uppbótarmeðferð vegna vanseytingar kynkirtla karla þegar testósterón skortur hefur verið staðfestur.

Notkun á lyfjum

LyfjaformÚtvortis hlaup.
Venjulegar skammtastærðirSkammtapokar: 1 poki (50 mg testósterón). Pumpa: 2 dælingar. Lyfið er borið á hreina og þurra húð í þunnu lagi 1 sinni á dag, helst á sama tíma dags, að morgni. Hendur skal þvo eftir notkun.
Hversu langur tími uns verkun kemur framEkki að fullu þekkt.
Verkunartími3-4 sólarhringar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEinkenni testósterónskorts koma aftur þegar notkun lyfsins lýkur. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunAukaverkanir eru tíðari þegar lyfið er notað í langan tíma.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanirnar eru áhrif á húð.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Brjóstastækkun, eymsli í brjóstum
    Leitið til læknis
  • Hárlos
    Leitið til læknis
  • Háþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, sundl
    Leitið til læknis
  • Minnisleysi
    Leitið til læknis
  • Náladofi
    Leitið til læknis
  • Niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Roði, þurr húð og bólur
    Leitið til læknis
  • Skapgerðarbreytingar
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Taugaveiklun, aukin líkamsþyngd, langvinn og tíð stinning
    Leitið til læknis
  • Útbrot og mikill kláði
    Leitið til læknis
  • Þvagtregða
    Leitið til læknis

Milliverkanir

Testogel getur haft áhrif á blóðþynningarlyf sem tekin eru inn, barkstera og skjaldkirtilslyf. Notkun andrógena (testósteróns) getur minnkað insúlínþörf hjá sykursjúkum.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með háþrýsting
  • þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með öndunarfærasjúkdóm
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið er ekki ætlað konum. Það getur aukið líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu. Þungaðar konur verða að forðast snertingu við svæði sem lyfið hefur verið borið á (t.d. á maka).
BrjóstagjöfLyfið er ekki ætlað konum.
BörnLyfið er ekki ætlað drengjum yngri en 18 ára.
Eldra fólkVenjulega ekki notað. Aukin hætta er á stækkun blöðruhálskirtils hjá eldri karlmönnum.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirBannað í og utan keppni.
AnnaðKonur ættu ekki að nota Testogel þar sem möguleiki er á karllegum einkennum. Testósterón hlaup getur borist milli fólks við nána húðsnertingu ef engar varúðarráðstafanir eru viðhafðar.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.