Ticagrelor Medical Valley
Lyfseðilsskylt
Ticagrelor Medical Valley inniheldur virka efnið ticagrelor. Það tilheyrir lyfjaflokki sem kallast blóðflöguhemjandi lyf. Ticagrelor er notað samhliða asetýlsalisýlsýru (sem er annað blóðflöguhemjandi lyf) hjá fullorðnum eingöngu. Lyfið er gefið einstaklingum sem hafa fengið hjartaáfall, fyrir meira en ári síðan. Lyfið minnkar líkurnar á öðru hjartaáfalli, heilaslagi eða andláti af öðrum sjúkdómum sem tengist hjartanu eða æðum. Ticagrelor verkar á svokallaðar blóðflögur. Þessar örlitlu frumur í blóðinu aðstoða við að stöðva blæðingu með því að loða saman og mynda þannig tappa í örsmá göt í særðum eða skemmdum æðum. Blóðflögur geta einnig myndað tappa innan í sjúkum æðum í hjarta eða heila.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Gulur | Gulur |
| Áletrun | T |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 9 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 90 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Ticagrelor hefur áhrif á blóðstorknun, svo flestar aukaverkanir tengjast blæðingum. Blæðingar geta orðið í öllum hlutum líkamans. Sumar blæðingar eru algengar (svo sem marblettir og blóðnasir). Alvarlegar blæðingar eru sjaldgæfar, en geta verið lífshættulegar.
- Höfuðverkur, sundlLeitið til læknis
- MæðiLeitið til læknis
- Magaóþægindi, ógleði, harðlífi, niðurgangurLeitið til læknis
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- YfirliðLeitið strax til læknis
- Slappleiki eða doði í höndum eða fótumLeitið strax til læknis
- Blæðing í heila eða innan höfuðkúpuLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Lyfið getur milliverkað við ýmis lyf. Listinn er ekki tæmandi.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með astma eða annan öndunarfærasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir blæðingartilhneigingu
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með lifrarsjúkdóm
- þú hafir fengið heilablóðfall eða heilablæðingu

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Gulur | Gulur |
| Áletrun | T |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 9 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 90 mg |








