TicoVac Junior

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: TBE veirur

Markaðsleyfishafi: TicoVAC | Skráð: 1. júní, 2019

TBE-veira getur valdið mjög alvarlegum sýkingum í heila, heilahimnu og/eða mænu. Helstu einkenni hennar eru höfuðverkur og hár hiti. Í alvarlegum tilfellum getur sjúkdómurinn valdið meðvitundarleysi og jafnvel dauða. Veiran berst með blóðmítlum og er hættan mjög mikill á sumum svæðum í Mið og Norður Evrópu. TicoVac Junior inniheldur dauðar TBE veirur sem eiga að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn veirunni án þess að fólk veikist.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Grunnbólusetning: Gefnir eru þrír skammtar. Eftir fyrsta skammt skulu 1-3 mánuðir líða þar til næsti skammtur er gefinn. Ef þörf er á að ná fljótlega fram ónæmi þá má gefa annan skammt tveimur vikum eftir fyrsta skammt. Þriðji skammturinn er gefinn 5-12 mánuðum eftir annan skammt. Örvunarskammtur: Gefinn í síðasta lagi 3 árum eftir þriðja skammt. Frekari örvunarskammta ætti að gefa á 3-5 ára fresti.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Full verkun kemur ekki fyrr en eftir að búið er að gefa þriðja skammtinn.

Verkunartími:
Eftir þriðja skammt virkar lyfið í 3 ár.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef gefnir eru tveir skammtar í einu eða ef skammtarnir eru gefnir með stuttu millibili þá eru meiri líkur á aukaverkunum.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti          
Höfuðverkur          
Krampar        
Meðvitundarleysi vegna blóðþrýstingsfalls        
Ógleði, uppköst, lystarleysi          
Óróleiki          
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Svefntruflanir          
Svimi, sjóntruflanir          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        
Vöðvaverkir, liðverkir          
Þreyta, lasleiki          

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi meðferð geta fengið minni mótefnasvörun.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú sért með heilasjúkdóm
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
  • þú sért með ofnæmi fyrir kjúklingi, eggjum eða latexi
  • þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm

Meðganga:
Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:
Lyfið er ætlað börnum á aldrinum 1-16 ára.

Eldra fólk:
TicoVac er ætlað eldra fólki.

Akstur:
Lyfið getur valdið sjóntruflunum og svima. Því ber að forðast að stjórna vélknúnum tækjum eða hjóla þar til áhrif lyfsins hafa komið í ljós.

Áfengi:
Á ekki við.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.