Trajenta
Lyfseðilsskylt
Trajenta, sem inniheldur virka efnið linagliptín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem er myndað af betafrumum í briskirtli. Það er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Linagliptín er notað við sykursýki af tegund II. Linagliptín er öflugur og sértækur ensímhemill og felst virkni þess í því að auka næmni betafrumna fyrir glúkósa og leiða þannig til aukinnar glúkósaháðrar insúlínseytingar. Einnig hefur lyfið þau áhrif að draga úr framleiðslu glúkósa í lifur, við föstu og eftir máltíðir og stuðla þannig að lægri blóðsykri. Linagliptín er notað í tveggja lyfja meðferð ásamt metformíni, súlfónýlúrealyfi eins og glípízíð, glíklazíð og glímepíríð eða thíazólidíndíonlyfi eins og píóglítazón ef meðferð með þessum lyfjum einum og sér hefur ekki borið nægilega góðan árangur. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurslækkandi lyf eru tekin samtímis lyfinu.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Rauður | Rauður |
| Áletrun | D5 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 5 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Þar sem lyfið er eingöngu notað sem hluti af tveggja lyfja meðferð, getur tíðni aukaverkana verið mismunandi eftir því hvaða lyf er tekið með.
- Bjúgur í útlimum, þyngdaraukningLeitið til læknis
- Höfuðverkur, sundl, skjálftiLeitið til læknis
- Of lágur blóðsykurLeitið til læknis
- ÓgleðiLeitið til læknis
- ÞróttleysiLeitið til læknis
- GulaLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Sykurbarksterar (sum húðlyf og bólgueyðandi lyf), beta-2 agonistar (sum astmalyf) og þvagræsilyf hafa sykurhækkandi áhrif. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið hjartabilun
- þú takir einhver önnur lyf

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Rauður | Rauður |
| Áletrun | D5 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 5 mg |








