Travatan

Glákulyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Travóprost

Markaðsleyfishafi: Alcon | Skráð: 1. febrúar, 2004

Travatan er notað við gláku og háum augnþrýstingi. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, með þeim afleiðingum að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Travatan inniheldur virka efnið travóprost og er notað til að lækka augnþrýsting hjá sjúklingum með háan augnþrýsting eða gleiðhornsgláku. Lyfið dregur úr augnþrýstingi með því að auka útflæði augnvökva. Lyfið er annaðhvort notað eitt sér eða með öðru lyfi sem viðbótarmeðferð.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Augndropar.

Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga einu sinni á dag, helst að kvöldi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2 klst. Hámarksverkun næst eftir um 12 klst.

Verkunartími:
Verkun varir í minnst 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið getur smám saman breytt augnlit. Meðferð á öðru auganu getur því leitt til þess að lithimnur augna verði varanlega mislitar. Lyfið getur einnig breytt augnhárum á meðhöndluðu auga. Breytingarnar sem um ræðir geta verið lenging, þykknun, dökknun og/eða fjölgun augnhára.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Augnþurrkur, ljósfælni og verkur í auga          
Breytingar á augnhárum          
Erting, kláði og roði í augum          
Lágur blóðþrýstingur, hægur hjartsláttur          
Roði og bólga í augum eða augnlokum          
Öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Milliverkanir við önnur lyf hafa ekki verið kannaðar. Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért ekki með augastein í öðru eða báðum augum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Rotvarnarefni í augndropunum geta skemmt mjúkar augnlinsur. Fjarlægja skal augnlinsur fyrir notkun og þær má setja í að nýju 15 mín. síðar.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.