Treo Hindbær
Verkjalyf
Lausasölulyf
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Asetýlsalicýlsýra, KoffeinSkráð 1. júní 2020
Treo Hindbær inniheldur blöndu tveggja virkra innihaldsefna sem vinna saman til þess að auka verkjastillandi eiginleika lyfsins. Annars vegar inniheldur lyfið asetýlsalicýlsýru, og hún er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi. Hins vegar koffein, með væg örvandi áhrif á heilann, en nánar tiltekið dregur það saman heilaæðar og eykur verkjastillandi verkun asetýlsalicýlsýrunnar. Lyfið hentar vel við vægum verkjum, sérstaklega ef bólga er til staðar. Þá er Treo notað til að lækka sótthita og við vægu mígreni.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Freyðitafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 20 mm |
| Grunnlögun | Flöt |
| Styrkur | 500/50 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformFreyðitöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir: 1-2 freyðitöflur í senn 1-4sinnum á dag.
Töflurnar leysist upp í ½ glasi af vatni. Hver freyðitafla inniheldur 500 mg asetýlsalicýlsýru og 50 mg koffein.
Lyfið má nota að hámarki í 10 sólarhringa í mánuði.
Hversu langur tími uns verkun kemur framVerkjastillandi áhrif koma fram eftir 20-30 mín. Hámarksáhrif næst eftir u.þ.b. 30 mín.
Verkunartími4-6 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistLyfið er tekið eftir þörfum.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má inntöku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa
samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.
LangtímanotkunEkki er mælt með langtímanotkun á þessu lyfi. Það er einungis notað eftir þörfum. Langtímanotkun þessa lyfs gæti leitt til myndunar á magasári. Einnig getur mikil notkun valdið því að höfuðverkir verða verri og tíðar.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Hraður hjartslátturLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, brjóstsviði, ógleðiLeitið til læknis
- Óróleiki, svefnleysiLeitið til læknis
- SkjálftiLeitið til læknis
- Óeðlilegar blæðingarLeitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagiLeitið strax til læknis
- Mæði eða öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með astma
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið magasár
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með óþol eða ofnæmi fyrir öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum lyfjum
MeðgangaFyrstu 6 mánuði meðgöngu má taka lyfið aðeins gegn læknisráði. Lyfið er ekki ætlar konum á seinustu 3 mánuðum meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlar börnum yngri en 15 ára nema gegn læknisráði. Aldrei má gefa börnum yngri en 15 ára lyfið ef þau eru með hita.
Eldra fólkMinni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Freyðitafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 20 mm |
| Grunnlögun | Flöt |
| Styrkur | 500/50 mg |








