Twinrix Paediatric

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Lifrarbólgu A veirur Lifrarbólgu B mótefnavakar

Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline | Skráð: 1. janúar, 1999

Lifrarbólga A er veirusýking og er hún nánast óþekkt hér á landi. Þau tilfelli sem þekkt eru hérlendis hafa flest borist frá öðru landi. Helstu smitleiðir lifrarbólgu A veirunnar eru þar sem hreinlæti er ábótavant, þ.e. með matvælum, vatni og við nána snertingu. Í flestum tilfellum gengur sjúkdómurinn sjálfkrafa yfir en í einstaka tilfellum getur hann valdið alvarlegum fylgikvillum, eins og lifrarbilun. Lifrarbólga B er veirusýking sem um 5% Íslendinga hafa sýkst af. Í flestum tilfellum lagast sjúkdómurinn af sjálfu sér en í einstaka tilfellum getur sjúkdómurinn valdið alvarlegum fylgikvillum eins og viðvarandi lifrarbólgu, skorpulifur og lifrarkrabbameini. Helstu smitleiðir lifrarbólgu B veirunnar eru við kynmök, með sýktum nálum, barn getur sýkst við fæðingu ef móðir er sýkt svo og við blóðgjöf en hverfandi líkur eru á því hér á landi þar sem allt blóð sem gefið er, er skimað fyrir lifrarbólgu B. Twinrix Paediatric inniheldur blöndu af veiklaðri lifrarbólgu A veiru og lifrarbólgu B mótefnavaka og er það notað til þess að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn þessum veirum án þess að fólk veikist.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva eða undir húð í undantekningartilfellum.

Venjulegar skammtastærðir:
Einn skammtur gefinn 3svar sinnum. Gefa skal annan skammtinn einum mánuðum eftir fyrri skammtinn og þriðja skammtinn 6 mánuðum eftir fyrsta skammt.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-4 vikur eftir einn skammt af bóluefninu.

Verkunartími:
Ekki er vitað með vissu hversu lengi bóluefnið virkar en talið er að vörn gegn lifrarbólgu A dugi í a.m.k. 25 ár og vörn gegn lifrarbólgu B dugi í a.m.k. 10 ár.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtarnir hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru yfirleitt vægar og standa yfir í stuttan tíma.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti, slappleiki, höfuðverkur          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Krampar        
Mikill höfuðverkur, ógleði og uppköst        
Niðurgangur          
Ógleði, lystarleysi            
Pirringur og syfja hjá börnum          
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Svimi, náladofi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingasjúkdóm
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
  • þú sért með einhvern langvinnan sjúkdóm

Meðganga:
Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:
Lyfið er ætlað börnum á aldrinum 1-15 ára.

Eldra fólk:
Twinrix Adult er ætlað eldra fólki.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.