Typhim Vi

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Taugaveiki mótefnavakar

Markaðsleyfishafi: Sanofi | Skráð: 1. júlí, 1994

Salmonella typhi er baktería sem orsakar taugaveiki. Helstu einkenni taugaveiki eru hár hiti, kviðverkir, skjálfti, skert meðvitund og útbrot. Taugaveiki getur verið lífshættuleg og er því mælt með því að þeir sem eru að ferðast um sveitahéruð hitabeltislanda láti bólusetja sig. Typhim Vi inniheldur hreinsaðar dauðar Salmonella typhi bakteríur sem eiga að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn bakteríunni án þess að fólk veikist. Bóluefni veitir ekki fulla vörn og veitir ekki vörn gegn öðrum salmonellu sýkingu, sem valda t.d. matareitrun.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva eða undir húð.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 2ja ára: Einn skammtur gefinn einu sinni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
U.þ.b. 15 dagar.

Verkunartími:
A.m.k. 3 ár.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er bara gefið einu sinni.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Á ekki við.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Aukaverkanir koma yfirleitt fram 48 stundum eftir bólusetningu og eru yfirleitt vægar og skammvinnar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Flökurleiki          
Hiti          
Höfuðverkur          
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Lyfið má gefa í sömu sprautu og lyfið Stamaril en annars má ekki blanda því í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hita eða sýkingu

Meðganga:
Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:
Lyfið er almennt ekki ætlað börnum yngri en 18 mánaða.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.