Valaciclovir Actavis

Veirusýkingalyf | Verðflokkur: G | Lausasölulyf/Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Valacíklóvír

Markaðsleyfishafi: Actavis | Skráð: 1. janúar, 2010

Valaciclovir Actavis er notað við veirusýkingum. Lyfið er notað til meðferðar á ristli (herpes zoster), til meðferðar og til að fyrirbyggja sýkingar í húð og slímhúð, m.a. kynfæravörtur og til að fyrirbyggja sýkingar af völdum cýtómegalóveiru eftir líffæraígræðslu. Valacíklóvír, virka efnið í lyfinu, hindrar myndun erfðaefnis herpesveira og stöðvar þannig fjölgun þeirra. Þegar veira er stöðvuð reynist ónæmiskerfi líkamans auðveldara að vinna á sýkingunni. Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. alnæmissjúklingar, gætu þurft að nota lyfið til langs tíma því að þeir ná síður að vinna á veirunni. Lyfið hefur mest áhrif sé það strax notað í byrjun á sýkingu, á meðan veiran er ennþá að fjölga sér. Valacíklóvír er notað við sýkingum af völdum herpesveira þegar um slæmar eða síendurteknar sýkingar er að ræða. Valacíklóvír breytist í líkamanum í acíklóvír. Valacíklóvír nýtist betur eftir inntöku en acíklóvír, og því nægir að taka það inn 1-2svar á dag en acíklóvír þarf að taka 2-5 sinnum á dag. Athugið að veiran er smitandi meðan sár af völdum sýkingarinnar eru til staðar, líka þótt lyfið sé notað.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
500-2000 mg í senn 1-4 sinnum á dag, háð sýkingu. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Meðferð við frunsum: Venjulegur skammtur er 2.000 mg (fjórar 500 mg töflur) tvisvar á dag. Seinni skammtinn skal taka 12 klst. (ekki innan við 6 klst.) eftir fyrsta skammtinn. Þú átt að taka lyfið í aðeins einn dag (tvo skammta) ef þú keyptir lyfið í lausasölu.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif geta komið fram innan sólarhrings.

Verkunartími:
Allt að einn sólarhringur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að veirur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (síma 543 2222).

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur          
Ofskynjanir, rugl          
Ógleði          
Ósjálfráðar hreyfingar          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Lyfið er aðeins ætlað börnum 12-17 ára með læknisráði.

Eldra fólk:
Lyfið getur skilist hægar úr líkamanum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.