Valsartan Jubilant

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: ValsartanSkráð 1. nóvember 2018

Valsartan Jubilant inniheldur virka efnið valsartan. Það er hjartalyf sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast angíótensín II blokkar. Það hindrar áhrif angíótensíns II sem er eitt öflugasta æðaþrengjandi efni í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, sem eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að hækkun blóðþrýstings. Valsartan stuðlar þannig að blóðþrýstingslækkun vegna æðavíkkunar og aukins vatnsútskilnaðar. Valsartan Jubilant er notað við of háum blóðþrýstingi, fyrir einstaklinga með nýlegt hjartadrep og fyrir sjúklinga með hjartabilun. Þegar þörf er á mikilli lækkun blóðþrýstings er lyfið gefið með þvagræsilyfjum, t.d. hýdróklórtíazíði. Lyfið má einnig gefa með öðrum blóðþrýstingslyfjum. Valsartan veldur færri aukaverkunum en þau lyf sem hindra myndun angíótensíns II og þolist yfirleitt betur.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir40-320 mg á dag í 1-2 skömmtum. Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en ekki til þess að skipta henni í jafna skammta. Töflurnar takist inn með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 2 klst. og hámarkslækkun blóðþrýstings kemur fram innan 4-6 klst. eftir stakan skammt. Hámarksáhrif nást yfirleitt innan 2-4ra vikna.
VerkunartímiA.m.k. 24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum og upprunalegum umbúðum, varið ljósi og raka, við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturEf þú finnur fyrir miklu sundli og/eða finnst eins og það sé að líða yfir þig, leggstu þá niður og hafðu strax samband við lækninn. Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru almennt mjög vægar og rannsóknir sýna að algengi þeirra er álíka mikið og hjá einstaklingum sem ekki taka lyfið.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Sundl
    Leitið til læknis
  • Svimi þegar staðið er upp
    Leitið til læknis
  • Sýkingar
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hjartsláttartruflanir
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Fylgjast þarf vel með kalíumþéttni í blóði hjá þeim sjúklingum sem fá valsartan og taka kalíumsparandi þvagræsilyf eða kalíum inn aukalega. Það sama á við um önnur lyf sem geta aukið kalíum í blóði. Einnig er æskilegt að fylgjast með styrk litíums í blóði við samtímis notkun valsartans og litíumsalta. Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf geta aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif valsartans.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með aðra hjartasjúkdóma
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú hafir nýlega fengið mikinn niðurgang eða uppköst
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnBörn 6-18 ára við háþrýstingi: skammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÁfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.