Varivax

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Bóluefni

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Hlaupabóla veikluð veiraSkráð 28. ágúst 2019

VARIVAX er bóluefni sem stuðlar að vörn gegn hlaupabólu hjá fullorðnum og börnum. Eins og á við um önnur bóluefni, veitir VARIVAX ekki fulla vernd gegn hlaupabólu hjá öllum. Hlaupabóla er sjúkdómur sem orsakaður er af veiru og er algengastur í börnum. Helstu einkenni sjúkdómsins eru bólur eða blettir í húð sem geta valdið miklum kláða sem breytast síðan í blöðrur og að lokum í sár. Sjúkdómurinn er mjög smitandi en þó ekki lífshættulegur. VARIVAX inniheldur veiklaða lifandi hlaupabóluveiru sem á að vekja upp mótefnasvörun í líkamanum án þess að fólk veikist af hlaupabólu og veitir þannig vörn gegn sjúkdómnum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformStungulyf.
Venjulegar skammtastærðirLæknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður gefur VARIVAX. Til þess að tryggja hámarksvörn gegn hlaupabólu þarf tvo skammta af VARIVAX með 1-3 mánaða millibili. Lengd á milli skammta er ákvarðaður út frá aldri.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðNei.
GeymslaGeymið og flytjið í kæli (2°C - 8°C).
Ef skammtur gleymistHafðu samband við lækninn sem ákveður hvort skammtur sé nauðsynlegur og hvenær eigi að gefa hann.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsÁ ekki við.
Ef tekinn er of stór skammturOfskömmtun er mjög ólíkleg þar sem bóluefnið er í stakskammta hettuglasi og gefið af lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni.
LangtímanotkunÁ ekki við.

Aukaverkanir

Eins og við á um öll bóluefni og lyf getur þetta bóluefni valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum. Listinn hér er ekki tæmandi, sjá fylgiseðil fyrir allar aukaverkanir.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hiti
    Leitið til læknis
  • Skapstyggð
    Leitið til læknis
  • Sýkingar
    Leitið til læknis
  • Viðbrögð á stungustað
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Krampar
    Leitið strax til læknis
  • Óeðlilegar blæðingar og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
  • Vöðvaslappleiki, dofi í útlimum
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Bólusetningu á að fresta í a.m.k. 5 mánuði eftir blóð/blóðvökvagjöf. Forðast á lyf sem innihalda asetýlsalisýlsýru í 6 vikur eftir bólusetningu með VARIVAX þar sem það getur leitt til alvarlegs ástands sem kallast Reyes-heilkenni og getur haft áhrif á öll líffæri.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með krabbamein
  • þú sért með berkla
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
MeðgangaVARIVAX á ekki að gefa á meðgöngu, einnig á að forðast þungun í einn mánuð eftir bólusetningu.
BrjóstagjöfVARIVAX er yfirleitt ekki ráðlagt hjá konum með barn á brjósti.
BörnVARIVAX má gefa einstaklingum frá 12 mánaða aldri. VARIVAX má einnig gefa ungbörnum frá 9 mánaða aldri við sérstakar aðstæður.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.