Vaxneuvance
Lyfseðilsskylt
Pneumokokkar eru bakteríur sem eru ein algengasta orsök lungnabólgu en einnig geta þær valdið heilahimnubólgu, blóðsýkingu, miðeyrnabólgu og fleiri sjúkdómum. Bólusetningar gegn pneumokokkum eru nær eingöngu framkvæmdar hjá þeim sem taldir eru vera í áhættuhópi fyrir slíkum sýkingum. Í þeim hópi eru t.d. miltislausir einstaklingar, einstaklingar með skert ónæmiskerfi, langvarandi hjarta-, lungna- og nýrnasjúkdóm, með sykursýki eða áfengissýki og fólk sem býr eða vinnur í umhverfi þar sem aukin hætta er á pneumokokkasýkingum. Vaxneuvance er bóluefni sem myndar vörn gegn 15 mismunandi tegundum pneumokokka.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Viðbrögð á stungustað og hiti eru algengustu aukaverkanir lyfsins.
- HitiLeitið til læknis
- Höfuðverkur, vöðvaverkirLeitið til læknis
- LystarleysiLeitið til læknis
- PirringurLeitið til læknis
- Roði, bólga og eymsli á stungustaðLeitið til læknis
- Svefntruflanir, svefnhöfgiLeitið til læknis
- KramparLeitið strax til læknis
- Lítil svörun við áreitiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú hafir einhvern tíma fengið krampa








