Veraloc Retard

Kalsíumgangalokar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Verapamíl

Markaðsleyfishafi: Orion Pharma | Skráð: 1. október, 1988

Veraloc Retard tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn háðar kalsíumflæði inn í frumuna. Áhrifa kalsíumblokkara gætir því mest hjá frumum með lítið kalsíum, eða vöðvafrumum í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist aðallega að æðum eða hjarta. Virka efnið verapamíl hefur áhrif á hjarta, þar sem það minnkar samdráttarkraft hjartans og víkkar út kransæðar. Lyfið er því notað við hjartaöng og háum blóðþrýstingi. Það hefur líka áhrif á leiðni í hjartanu og er vegna þess notað við hjartsláttartruflunum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
200 mg í senn 1-2svar á dag. Töflunum má skipta. Töflurnar gleypist en má hvorki tyggja þær né mylja.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 2 klst.

Verkunartími:
U.þ.b. 12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Greipaldinsafi og koffein geta hægt á útskilnaði lyfsins úr líkama og aukið þar með líkur á aukaverkunum.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegt er að minnka skammta smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er hægðatregða og kemur fyrir hjá 4-30% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur í ökklum          
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur        
Hægðatregða          
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Ógleði          
Skapgerðarbreytingar          
Útbrot, kláði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur fyrir brjósti        

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Verapamíl hægir á útskilnaði áfengis í líkama og áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.