LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirEin tafla kvölds og morgna. Hver tafla inniheldur 50 mg af vildagliptíni og 850 eða 1000 mg af metformíni. Með því að taka lyfið með mat eða rétt eftir mat má draga úr einkennum frá meltingarvegi af völdum metformíns. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1-2 klst. 2 vikur geta liðið þar til náðst hefur stjórn á sykursýkinni.
VerkunartímiA.m.k. 12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðBreytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.
GeymslaGeymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni í öllum tilfellum eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Ef sjúklingur missir meðvitund skaltu leita neyðarhjálpar.
LangtímanotkunReynsla af notkun vildagliptíns í klínískum rannsóknum er ennþá lítil. Mælt er með því að fylgjast með lifrarensímum sjúklinga ásamt nýrna- og hjartastarfsemi.