Xalatan

Glákulyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Latanóprost

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. október, 1999

Xalatan er notað við gláku. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, með þeim afleiðingum að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Latanóprost eykur frárennsli augnvökva og dregur með því úr þrýstingi í auganu. Xalatan er notað við háum augnþrýstingi og gleiðhornsgláku.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Augndropar.

Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga einu sinni á dag, helst að kvöldi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
3-4 klst.

Verkunartími:
A.m.k. 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum, varið ljósi þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Fylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til að meta áhrif lyfsins.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Erting í augum, roði í augum          
Litabreytingar í lithimnu          
Roði og bólga í augum eða augnlokum          
Útbrot          
Verkur fyrir brjósti, mæði        

Milliverkanir

Engar nákvæmar upplýsingar liggja fyrir um milliverkanir. Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú notir augnlinsur

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið er ekki ráðlagt á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið getur borist í brjóstamjólk. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Rotvarnarefni í augndropunum geta skemmt mjúkar augnlinsur. Fjarlægja skal augnlinsur fyrir notkun og þær má setja í að nýju 15 mín. síðar.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.