Xorox

Veirusýkingalyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Acíklóvír_

Markaðsleyfishafi: AGEPHA Pharma | Skráð: 1. mars, 2020

Xorox er notað við veirusýkingum. Acíklóvír, virka efnið í lyfinu, hindrar myndun erfðaefnis herpesveira og stöðvar þannig fjölgun þeirra. Þegar veira er stöðvuð reynist ónæmiskerfi líkamans auðveldara að vinna á sýkingunni. Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. alnæmissjúklingar, gætu þurft að nota lyfið til langs tíma því að þeir ná síður að vinna á veirunni. Lyfið hefur mest áhrif sé það strax notað í byrjun á sýkingu, eða á meðan veiran er ennþá að fjölga sér. Acíklóvír er notað við sýkingum af völdum herpesveira.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Augnsmyrsli.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið undir neðra augnlok 5 sinnum á dag, á 4 klst. fresti. Meðferð skal halda áfram í þrjá daga eftir að einkenni eru horfin.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif geta komið fram innan sólarhrings.

Verkunartími:
Um 8 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að veirur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Lyfið er aðeins notað í takmarkaðan tíma.


Aukaverkanir

Strax eftir notkun getur þú orðið var við tímabundinn, vægan sviða eða brunatilfinningu.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Sviði, sár og bólga í auga          
Útbrot, kláði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Engar milliverkanir hafa verið skráðar með augnsmyrslinu.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með ofnæmi fyrir valacyklovir

Meðganga:
Nota má lyfið á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Nota má lyfið á meðan á brjóstagjöf stendur.

Börn:
Venjulegar skammtastæðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastæðir.

Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augnsmyrslis valdið tímabundnum sjóntruflunum. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.