Xyloproct
Æðaverndandi lyf
Lausasölulyf
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Hýdrókortisón_, Lídókaín_Skráð 21. ágúst 2024
Xyloproct endaþarmssmyrsli og endaþarmsstílar innihalda tvö virk efni (lídókaín og hýdrókortisón) sem verka á ólíkan hátt. Hýdrókortisón dregur úr bólgu. Lídókaín dregur úr verkjum og kláða. Xyloproct er notað til meðferðar við gyllinæð og yfirborðslægri ertingu í endaþarmi hjá fullorðnum.
Notkun á lyfjum
LyfjaformEndaþarmsstílar og -krem.
Venjulegar skammtastærðir1 stíll í endaþarm kvölds og morgna og eftir þörfum eftir hverja hægðalosun, mest 5 stílar á dag. Stinga á endaþarmsstílnum inn með slétta endann á undan.
Kremið er borið á einu sinni eða oftar á dag, nota má allt að 6 grömm af endaþarmssmyrsli á sólarhring.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið byrjar fljótt að verka en nokkrir dagar geta liðið þangað til einkennin hverfa.
Verkunartími.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymið í kæli (2°C-8°C). Geyma má endaþarmssmyrslið og stílana við allt að 25°C í 2 mánuði.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni eða eitrunarmiðstöð (sími 543-2222).
LangtímanotkunLeitið til læknis ef einkenni hafa ekki batnað eftir 2-3 vikna meðferð með Xyloproct. Langtímanotkun getur leitt til húðþynningar.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru sjaldgæfar við venjulega notkun lyfsins í stuttan tíma.
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Ofnæmiskennd húðbólgaLeitið til læknis
- Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Xyloproct getur haft áhrif á verkun tiltekinna lyfja eða orðið fyrir áhrifum af þeim: önnur staðdeyfilyf og lyf við óreglulegri virkni í hjarta (lyf við hjartsláttartruflunum).
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með porfýríu
MeðgangaEkki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif á fóstur. Þó skal nota minnsta hugsanlega skammt og í eins skamman tíma og kostur er, ef Xyloproct er notað á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÁfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirBannað í keppni.
Annað Eftir notkun á að þvo hendur vandlega.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








