LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirFyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, samfleytt í 21 dag. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi, hvort sem tíðablæðingum er lokið eða ekki. Hver tafla inniheldur 3 mg dróspírenón og 30 míkrógrömm etinýlestradíól.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.
VerkunartímiLyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin. Samsettar getnaðarvarnatöflur geta þó hindrað útskilnað koffeins úr líkamanum. Æskilegt er að draga úr koffeinneyslu á meðan lyfið er tekið.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistGleymist að taka töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 7 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku getnaðarvarnarlyfja hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.