Yasmin 28

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Getnaðarvörn

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Dróspírenón, EtinýlestradíólSkráð 1. október 2007

Yasmin 28 er getnaðarvarnarlyf. Það flokkast til einfasa, samsettra, lágskammta getnaðarvarnarlyfja og inniheldur tvö virk efni (hormón), dróspírenón og etinýlestradíól. Dróspírenón er samtengt hormón og hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Etinýlestradíól virkar eins og kvenhormónið estradíól, en verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins. Munurinn á Yasmin og Yasmin 28 er sá að Yasmin inniheldur 21 töflu í spjaldi og á milli spjaldanna á að gera 1 viku hlé þar sem Yasmin 28 inniheldur 28 töflur í spjaldi og ekkert hlé á að gera. Þó ber að athuga að síðustu 7 töflurnar í síðarnefnda spjaldinu innihalda óvirkt efni.

Tafla 3/0,03 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirYasmin: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, samfleytt í 21 dag. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi, hvort sem tíðablæðingum er lokið eða ekki. Yasmin 28: Sama notkun og fyrir Yasmin, nema ekkert töfluhlé er gert heldur eru hvítu töflurnar teknar síðustu 7 dagana og á þeim tíma verða tíðablæðingar. Þegar spjaldið er búið er strax byrjað á næsta spjaldi daginn eftir. Hver tafla inniheldur 3 mg dróspírenón og 30 míkrógrömm etinýlestradíól, nema síðustu 7 töflurnar í Yasmin 28, en þær innihalda óvirkt efni.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.
VerkunartímiLyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin. Samsettar getnaðarvarnatöflur geta þó hindrað útskilnað koffeins úr líkamanum. Æskilegt er að draga úr koffeinneyslu á meðan lyfið er tekið.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistGleymist að taka töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 7 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku getnaðarvarnarlyfja hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Höfuðverkur, mígreni, ógleði
    Leitið til læknis
  • Sveppasýking í leggöngum, útferð
    Leitið til læknis
  • Truflanir á blæðingum, verkir í brjóstum
    Leitið til læknis
  • Þunglyndi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hækkaður eða lækkaður blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis
  • Gula, mjög mikill kláði
    Leitið strax til læknis
  • Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
MeðgangaLyfið á ekki að nota á meðgöngu. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Hætta á því að lyfið hafi áhrif á fóstur er þó talin hverfandi í þeim skömmtum sem það er notað.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Samsettar getnaðarvarnartöflur geta dregið úr magni og gæðum brjóstamjólkur.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkLyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðReykingar auka hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.