Zensitin

Ofnæmislyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt. Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu

Virkt innihaldsefni: Cetirizín

Markaðsleyfishafi: Williams & Halls | Skráð: 1. júlí, 2017

Cetirizín, virka efnið í Zensitin, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má minnka einkenni ofnæmis eða koma í veg fyrir þau. Cetirizín er notað gegn ofnæmi, ofnæmisbólgum í nefi og einnig útbrotum og kláða af völdum histamíns. Ólíkt mörgum ofnæmislyfjum hefur cetirizín óveruleg róandi og sljóvgandi áhrif.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 6 ára sem eru þyngri en 30 kg: 10 mg á dag. Börn eldri en 6 ára sem eru léttari en 30 kg: 5 mg á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1 klst. Einkenni ofnæmis geta þó varað í nokkra daga eftir að byrjað er að taka lyfið.

Verkunartími:
Minnst 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Ef munnþurrkur er viðvarandi getur þurrkurinn haft áhrif á slímhúðina í munninum og tannholdið.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Munnþurrkur          
Útbrot og mikill kláði          
Þreyta, syfja          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur í stöku tilfellum valdið syfju eða þreytu. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.