Zovir

Veirusýkingalyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Acíklóvír_

Markaðsleyfishafi: Haleon Denmark ApS | Skráð: 1. janúar, 1988

Zovir er notað við veirusýkingum. Acíklóvír, virka efnið í lyfinu, hindrar myndun erfðaefnis herpesveira og stöðvar þannig fjölgun þeirra. Þegar veira er stöðvuð reynist ónæmiskerfi líkamans auðveldara að vinna á sýkingunni. Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. alnæmissjúklingar, gætu þurft að nota lyfið til langs tíma því að þeir ná síður að vinna á veirunni. Lyfið hefur mest áhrif sé það strax notað í byrjun á sýkingu, eða á meðan veiran er ennþá að fjölga sér. Acíklóvír er notað við sýkingum af völdum herpesveira. Við vægari sýkingum í húð, eins og frunsu, er lyfið notað útvortis en við slæmum eða síendurteknum sýkingum er lyfið tekið inn eða gefið í æð. Athugið að veiran er smitandi á meðan sár af völdum sýkingarinnar eru til staðar, líka þótt lyfið sé notað.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem

Venjulegar skammtastærðir:
Krem: Borið á í þunnu lagi 5 sinnum á dag í 5-10 daga.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif geta komið fram innan sólarhrings.

Verkunartími:
Um 8 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að veirur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki notað til lengri tíma í senn, aðeins stuttar meðferðir meðan sýking er til staðar.


Aukaverkanir

Sé lyfið notað útvortis gæti það valdið staðbundinni ertingu.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Húðþurrkur          
Kláði, sviði í húð          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Milliverkanir fyrir Zovir krem eru ekki þekktar.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Nota má kremið á meðan brjóstagjöf stendur.

Börn:
Krem: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára án samráðs við lækni.

Eldra fólk:
Lyfið getur skilist hægar úr líkamanum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Kremið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.