Fungyn
Sveppalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt. Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu
Virkt innihaldsefni: Flúkónazól
Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 1. maí, 2010
Fungyn, sem inniheldur virka efnið flúkónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Hylki til inntöku og innrennslislyf í æð.
Venjulegar skammtastærðir:
Sveppasýking í fæðingarvegi: Einn stakur 150 mg skammtur. Aðrar sýkingar: 50-400 mg í senn. Meðferðarlengd fer eftir klínískri svörun eða niðurstöðum rannsókna. Hylkin gleypist heil. Innrennslislyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar að virka innan nokkurra klst. Misjafnt er hvenær áhrifin koma fram, eða eftir því hvaða sveppategund veldur sýkingu, hvar sýkingin er og hvaða lyfjaform er notað.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Flúkónazól er þó í langflestum tilfellum aðeins notað í skamman tíma.
Aukaverkanir
Um 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum af aukaverkunum þess.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Hjartsláttartruflanir | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Krampar | |||||||
Kviðverkir, niðurgangur | |||||||
Ógleði og uppköst | |||||||
Útbrot | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Bufomix Easyhaler
- Cortiment
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- DuoResp Spiromax
- Entocort
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Inspra
- Lynparza
- Methergin
- Multaq
- Pulmicort
- Pulmicort Turbuhaler
- Quetiapin Actavis
- Quetiapin Krka
- Quetiapin Medical Valley
- Quetiapin Viatris
- Quetiapine Alvogen
- Seroquel Prolong
- Symbicort (Lyfjaver)
- Symbicort forte Turbuhaler
- Symbicort mite Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler (Heilsa)
- Symbicort Turbuhaler (Lyfjaver) Noregur
- Trixeo Aerosphere
- Xeljanz
Getur haft áhrif á
- Abstral
- Adalat Oros
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Afinitor
- Alprazolam Krka
- Alprazolam WH (hét áður Alprazolam Mylan)
- Alvofen Express
- Amiloride / HCT Alvogen
- Amitriptylin Abcur
- Amló
- Amlodipin Bluefish
- Amlodipin Medical Valley
- Amlodipin Zentiva
- Amlodipine Vitabalans
- Aprepitant Medical Valley
- Aprepitant STADA
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Atorvastatin Xiromed
- Atozet
- Bosulif
- Braftovi
- Buccolam
- Candpress
- Candpress Comp
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cerazette
- Certican
- Cibinqo
- Cinacalcet STADA
- Cinacalcet WH
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clopidogrel Actavis
- Clopidogrel Krka
- Cloxabix
- Cordarone
- Cozaar
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Dailiport
- Darazíð
- Desirett
- Detrusitol Retard
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Diovan
- Dynastat
- Emend
- Emselex
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Entresto
- Esomeprazol Actavis
- Esomeprazol Krka
- Esomeprazol Krka (Heilsa)
- Esomeprazole Jubilant
- Everolimus WH
- Exforge
- Ezetimib/Simvastatin Krka
- Felodipine Alvogen
- Fentanyl Actavis
- Fentanyl Alvogen
- Fesoterodine Medical Valley
- Fesoterodine Teva
- Gestrina
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Grepid
- Hydromed
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Ikervis
- Imomed
- Imovane
- Inegy
- Isoptin Retard
- Kairasec
- Kestine
- Klacid
- Leptanal
- Lipistad
- Logimax
- Logimax forte
- Losartan Medical Valley
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium Krka
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Losatrix
- Mercilon
- Metadon 2care4
- Metadon Abcur
- Midazolam Medical Valley
- Míron
- Míron Smelt
- Mirtazapin Bluefish
- Mirtazapin Krka
- Modifenac
- Modigraf
- Mogadon
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Nefoxef
- Nexium
- Nexium (Heilsa)
- Nexium (Lyfjaver)
- Noritren
- Norvasc
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Omeprazol Actavis
- Omeprazol Alvogen (áður Omeprazol ratiopharm)
- Omeprazol Medical Valley
- Oropram
- Parapró
- PEDIPPI
- Pirfenidone axunio
- Presmin
- Presmin Combo
- Prograf
- Reagila
- Revastad
- Revatio
- Rimactan
- Rivaroxaban WH
- Rivotril
- Sandimmun Neoral
- Selincro
- Sildenafil Actavis
- Sildenafil Medical Valley
- Simvastatin Actavis
- Simvastatín Alvogen
- Simvastatin Bluefish
- Sobril
- Stesolid
- Tafil
- Tafil Retard
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Telfast
- Toradol
- Toviaz
- Valpress
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Valsartan Jubilant
- Valsartan Krka
- Venclyxto
- Veraloc Retard
- Viagra
- Vizarsin
- Vydura
- Warfarin Teva
- Xarelto
- Zarator
- Zopiclone Actavis
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
yfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Ekki er mælt með notkun lyfsins handa börnum yngri en 16 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið sundli eða flogum. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.