Bakrauf smyrsl
Bakrauf smyrsl
50 gBakrauf smyrsl er jurtasmyrsl þróað af Kolbrúnu grasalækni ætlað fyrir endaþarmssvæðið þar sem húðin er viðkvæm og getur orðið þurr, ert eða óþægileg. Smyrslið er hannað til að mýkja, vernda og styðja við þægindi við gyllinæð og tengd óþægindi.
Formúlan sameinar kakósmjör og rósaberjaolíu sem veita raka, mýkt og næringu, ásamt jurtum sem hafa lengi verið notaðar í hefðbundinni jurtakunnáttu. Vallhumall, nornahesli, gullmura og cypress eru þekkt fyrir samandragandi og róandi eiginleika, á meðan regnálmur styður við mýkt og vernd húðarinnar. Græðandi.
Hentar vel þegar húðin á endaþarmssvæðinu er viðkvæm, þurr eða ert og þarfnast aukinnar umhirðu.
- Kakósmjör (Theobroma cacao) - Er rakagefandi, næringaríkt og græðandi.
- Vallhumalsolía (Achillea millefolium) - Er bólgueyðandi og græðandi og því góð á sár sem bólga er í.
- Nornahesli (Hamamelis virginiana) - Er sótthreinsandi, bólgueyðandi og kláðastillandi.
- Regnálmur (Ulmus rubra) - Er mjög bólgueyðandi og mýkjandi.
- Gullmura (Potentilla erecta) - Er bólgueyðandi og græðandi fyrir blæðandi sár.
- Rósaberjaolía (Rosa canina) - Er mýkjandi og góð fyrir viðkvæma og sára húð.
- Cypress olía (Cupressus sempervirens) - Er samandragandi og minnkar blæðingar.
ATHUGIÐ. Hættið notkun ef vart verður við óeðlileg einkenni. Ef þú ert ófrísk, með barn á brjósti eða tekur lyf, leitaðu ráða hjá lækni eða heilbrigðisstarfsfólki. Neytið ekki meira en ráðlagt er.







